Vikan


Vikan - 17.09.1959, Blaðsíða 5

Vikan - 17.09.1959, Blaðsíða 5
 Tekið á móti fi/rstu græðlingunum á lóð skólans Húsmæðrakennaraskóla íslands Húsmæðrakennaraefni vinna að gróðursetningu A lóð skólans. Nauðsyn nemendasambanda. —• Af þeirri reynslu, sem ég hef fengið á mörgum undanförnum árum, er mér augljós nauðsyn, að nemendasambönd séu stofnuð við hvern húsmæðraskóla fyrir sig alls staðar á landinu. Aldrei hefur mér verið jafndýrmæt og nú sú mikla ræktarsemi og tryggð nemenda- sambands H. K. í. við skólann og mig og nú sl. 2 ár. Þessi ræktarsemi hefur ekki aðeins verið í orði, heldur einnig i verki. Eitt af mörgu, sem hægt er að sýna í þessu sambandi, er þessi klukka, sem hangir hér og gefin var af 10 ára nemendum.skólans til minn- ingar um frú Rósu Þorgeirsdóttur húsmæðra- kennara. Það er um gjafir, sem gefnar eru af slíkum huga, að við eiga orð Gunnars við Njál: . „Góðar eru gjafir þínar, en meira þykir mér vert vinfengi þitt og sona þinna.“ Sterk hönd við stjórnvölinn. Þegar við, hinir óboðnu gestir, kveðjum og þökkum ungfrú Helgu Sigurðardóttur skóla- stjóra viðtökurnar, finnum við, að á þessari stuttu stund, sem við áttum i þessum skóla, höfum við lika lært dálítið. Það hefur eitthvað ýtt við okkur þannig, að upp rifjast þessar hendingar: Hver þjóð, sem í gæfu og gengi vilj búa, á Guð sinn og land sitt skal trúa, Líf og starf A Laugarvatni. — Mér hefur skilizt það á ’sumum skólastúlk- unum, að þær búist við ýmsu frekar en sól- böðurn og sæluvist á Laugarvatni. — Það er nú hvert mál sem það er virt. Ég minnist gamallar konu, sem sagði eitt sinn við mig: „Ég get ekki hugsað mér himnariki öðru- vísi en að þar verði nóg að starfa“, — svo að sæluvist hefur í hennar huga verið lif og starf. Á Laugarvatni er einmitt líf og starf, — mikið starf. Það er nauðsyn að læra að vinna, — vera duglegur að vinna. Hver stúlka hefur sinn garð að rækta, lærir auk þess skyrgerð og smjör- gerð. Á Laugarvatni læra nemendur Húsmæðra- kennaraskólans að stiga fyrstu spor sín sem kennarar og fræðarar. Æfingin í þvi starfi hefst með því, að 12 unglingsstúlkur koma til náms til okkar að Laugarvatni og nemendurnir kenna þeim. Þar verður svo kennt á námskeiðum. Á hverju sumri, sem við dveljumst að Laugar- Sýnishorn af jurtalitum athugað. vatni, förum við upp á Hveravelli í grasaferð. Þá ferð læt ég aldrei niður falla, þvi. að ég vil í þvi sem öðru halda við því, sem er fornt og þjóðlegt, eftir þvi sem hægt er, svo að það falli ekki í gleymsku með komandi kynsióðum. Yfir sumarið safna nemendur yfir 100 blómategund- um, sem stúlkunum er kennt að gæta mikillar vandvirkni og nákvæmni við. Þetta er einn af hinum nauðsynlegu þáttum í starfsemi skól- ans. — Hvað telur þú mikilvægustu eiginleika góðs húsmæðrakennara? — Stjórnsemi, dugnað og sanngirni fyrir utan góða menntun, því að hún er vitaskuld nauð- synleg, segir Helga Sigurðardóttir. — Hvenær var skólinn stofnaður? — Árið 1942, en fluttist hingað i Háuhlíð 9 sl. haust. Tvö sl. ár hefur starfsemi skólans Íegið niðri vegna húsnæðisskorts, og á þeim tíma hafa risið þau vandræði, að nú vantar húsmæðra- kennara á nokkrum stöðum, en aðalvandræðin ve'rða þó á hausti komanda, þar sem skortur á húsmæðrakennurum verður þá mestur. Skóla- eldhúsum hér í Reykjavík fjölgar stöðugt, en þar kenna vitanlega húsmæðrakennarar. Skólinn hefur í vetur starfað með líku fyrirkomulagi og undanfarna vetur. Aðalkenn- ari er ungfrú Adda Geirsdóttir.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.