Vikan


Vikan - 17.09.1959, Blaðsíða 9

Vikan - 17.09.1959, Blaðsíða 9
hafi. Sumar skólasystra hennar fyrir- litu hana í þá daga, sökum þess aö hún varð að vinna fyrir sér með Þessum hætti. En nú segja þessar dömur: „Joan Crawford? Ja, hvort ég þekki hana! Við vorum beztu vin- konur, enda vorum við skólasystur'" Steíánsmenntaskólinn er í dag hreykinn af þessum fyrrverandi nem- anda, sem með frægð sinni hefur vrapað nokkrum ljóma á skólann. Á áberandi stað á einum veggnum í matsainum liangir stór mynd af Jo- an Crawford með þessari áletrun: Joan Crawford var framreiöslustúlka i þessum sal. Heitasta ósk hennar var að verða dansmær. Þegar henni var boðið slikt starf hjá umferðaleikflokki fyrir tólf dala laun á viku, tók hún því alls hugar fegin. En tveim vikum síðar var leikfiokkurinn leystur upp sök- um íjárhagsvandræða, og þarna stóð hún fjárvana uppi alein i framandi borg. En hún var óbugandi. Iíún fékk peninga að láni, hvarf aftur til Kansas-borgar, vann baki brotnu og lagði til hliðar hvern eyri, er hún mátti aí sjá. Og einn góðan veður- dag steig hún upp i Santa Fé-lestina og hélt af stað til Chicago. Er hún hafði greitt farseðilinn, átti hún tæpa tvo dali eftir. Hún þorði ekki að eyðn þeim og fór því svöng i háttinn það kvöldið. Loks fékk hún starf sem dansmær í músikreviu; síðar hélt hún svo til New York, þar sem hún dansaði í kórnum í Winter Garden-leikhúsinu. Og eitt kvöldið kom fulltrúi frá Metro Goldwin Meyer-kvikmyndafé- laginu auga á hæfileika hennar. Hann sá, að hér fór stúlka, sem hafði til að bera æsku, yndisþokka, fagra fót- leggi og eftirtektarverðan persónu- leika. Hann stakk því upp á, að hún léti prófa sig til kvikmyndatöku. 1 fyrstu tók hún .þvj. f jarri, því að hug- ur hennar hafði alltaf beinzt að því, að hún yrði fræg ballettdansmær. En eftir miklar fortölur lét hún að lok- um til leiðast, og var henni þá af- hentur farseðill til Hollywood og samningur upp á sextiu dali. Þeim leizt að visu ekki illa á hana í Hollywood, en nafnið Lucille Le- Sueur, sögðu þeir, að ekki næði nokkurri att fyrir kvikmyndaleik- konu. Var að lokum ákveðið, að Lucille LeSueur skyldi breytast í Joan Crawford. En því fór þó fjarri, að hún væri orðin stjarna. Hún lék ýmis smáhlut- verk á morgnana og daginn, en á kvöldin tók hún Þátt í danskeppni og vann þar margan frægan sigur. En þessi unga stúlka var ekki enn orðin sú Joan Crawford, sem við þekkjum úr kvikmyndunum. Ónei. Hún var heldur feitlagin lítil hnáta með þétt og liðað hár og kuldalega framkomu, er hún hafði tamið sér til að reyna að dylja feimni sína. En að lokum varð henni þó ljóst, að langt yrði framans að biða i Hollywood, ef hún breytti sér ekki verulega. Og með miklu viljaþreki breytti hún al- veg um stefnu. Hún hætti dansinum á kvöldin. 1 þess stað settist hún nú við nám fyrir alvöru. Hún lagði stund á frönsku, ensku og einsöng. Hún tók að grenna sig og var stöðugt svöng i þrjú ár. Og enn i dag bragðar hún varla annan morgunverð en glas af vatni með dálitlum ávaxtasafa út í. Iðulega bragðar hún ekki annað en ofurlítinn mjólkursopa allan daginn. Hún vann af kappi, og brátt fóru henrii að bjóðast betri hlutverk. I einu hlutverkinu, þar sem hún þurfti að dansa Apache-dans (Indíánadans), hrasaði hún og brotnaði um öklann. En hún óttaðist svo, að hún kynni að missa hlutverkið, að hún krafðist þess, að læknirinn vefði plástrum um fótinn, svo hún gæti haldið áfram að leika. Hún ólst upp við bág kjör og sára fátækt, en nú getur hún veitt sér allt, sem augað girnist og hjartaö þráir. En hún hefur ekki gleymt. bág- indum æsku sinnar, enda hefur hún tekið að sér fjögur munaðarlaus börn og veitt þeim hið bezta uppeldi. til dæmis Pianókonsert Nr. 1 eftir Tsjaíkovsky og nokkrar af sýmfónium Beethovens, — jú og pianóverk eftir Chopin og Liszt og fiðlukonzertar Brahms. Tónverk Wagners seljast hins vegar heldur lítið, og sama er að segja um tónverk flestra sígildra höfunda, annarra en þeirra, sem áður eru tald- ir, — þvi miður. — Og er það eingöngu eldri kyn- slóðin, sem kaupir það iitla, sem selst af sígildum tónlistarverkum á hljóm- plötum? — Ekki kannski eingöngu, en mest- megnis þó. Það á sér stað, að full- trúar yngri kynslóðarinnar kaupi slíkar hljómplötur og þá sér í lagi píanóverk. Jú, það kemur fyrir, en það er sem sagt sjaldgæft. — Eru ómvíddarplötur _ stereo — komnar á markað hér? — Já, en það'er ekki mikið spurt eftir þeim, enn sem komið er. Om- viddartækin eru dýr og fáir, sem hafa orðið sér úti um þau. Samt sem áður höfum við á boðstólum talsvert af ómvíddarplötum með kunnum tón- verkum og mjög vel leiknum. Vafa- laust á þó ómviddartæknin eftir að nema hér land, þó að ólíklegt megi teljast, að Iiún verði tiltölulega jafn- útbreidd hér og orðið hefur raunin erlendis. Ung stúlka kemur inn i verzlunar- básinn, og Ilelgi má ekki vera að því lengur að standa og spjalla. — Hafið þið til Personality? spyr stúlkan. — Já, gerið svo vel, svarar Helgi, og í næstu andrá hljómar þetta vin- sæla dægurlag um nálæg salarkynni i Vesturveri . .. En Rasmus þegir þar að þessu sinni, og má gera ráð fyrir, að afgreiðslu- fólk í næstu verzlunarbásum harmi Allar leiðir liggja, . . SiY*stiwn«rt«sg ®r. OítaUR. ícls ‘ Jóna ssort Lestraráhngi og lestrarörðugleikar Fimmta hvert barn á erfitt með lestur. Þú °g barnið þitt ■ Skrifar þú Faraó með einu Ijóni eða tveimur? jiV; É ll '§ Sí. ■ i.-' I ií* & m. ‘é. >$r. V. & ik’ m rX :>7 I Það kemur í ljós eftir nokk- urra vikna skólasókn, að lestr- arnámið reynist börnum mis- jafnlega erfitt. í lok fyrsta skólamánaðar eru flest börnin komin vel á skrið, þekkja letur- táknin og tengja þau réttum liljóðum fyrirhafnarlitið. Þau eru gliið af þessum árangri og fá lirós hjá kennara sínum. Við þetta vex áliugi þeirra og öll vel- líðan í skólanum. En nokkur hluti • barnanna (lregst sýnilega aftur úr. Þeim veitist örðugt að bera kennsl á leturtáknin, rétt eins og sú mynd af bókstaf og orði, sem á að festast i minnisstöðvum beilans, væri óskýr, losaraleg eða bein- línis skökk. Þess vegna verður lestur þeirra ruglingslegur og jágizkanakennd- ur. Um jólaleytið er munurinn orð inn greinilegri. Allur þorri barn- anna er þá orð- inn dálítið læs, en 6 -7 börn i bekknum fylgjast með aðeins að nafni til. Á undirstöðu- atriðum lestrarins hafa þau engu valdi náð, og því dragast þau lengra og lengra aftur úr, þegar lestrarefnið þyngist. Oft taka foreldrar seint eftir því, að barn þeirra dregst aft- ur úr. Þegar þau finna, að lestr- arlexian verður barninu erfið, grípa liau oft til þess óyndis- úrræðis að kenna barninu liana eins og þuhi. Sú aðferð svikur barnið raunvcrulcga uin þá lil- sögn, sem það þarfnast. Sjálft finnur barnið fljótlega, ef það stendur bekkjarsystkin- um sínum ekki jafnfætis. Það fær sjaldan hrósyrði lijá kenn- aranum, en þeim mun oftar hnútur frá krökkunum: „Þú þarft ekkert að vera að derra ' þig, þú ert eklci orðinn læs“. Á þennan liátt siast smám saman inn i barnið sú vitund, að það geli ekki lært að lesa, en við bað lamast vilji þess og áhuginn dofnar. Þannig byrja þeir lestrar- örðugleikar, sem fimmta livert barn í skókinuin okkar á við að stríða. Margvíslegar orsakir. Lestrarörðugleilcar koma fram mcð ýmsum hætti lijá börnum, en miklu fjölbreytilegri eru þó orsakirnar, sem þeir spretta af. Um ýmsar félagslegar orsakir, afstöðu foreldra til skólans og bein og óbein áhrif þeirra á framför barnsins, ræddum við nokkuð í síðasta þætti. Þar ræddum við einnig um skóla- þroska almennt. Hér verður að- eins minnzt á nokkrar alvarleg- ustu orsakirnar, sem fólgnar eru í barninu sjálfu og hindra Þ'am- för þess i námi. Um leið er vert að taka eftir því, hvefnig börn- in breytast, þegar þau sannfær- ast um getuleysi sitt í lestrar- náminu. Dabbi er hnellinn, greindar- legur 12 ára stráluir. Leti lians í skólanum er við brugðið. Hann fæst aldrei til að lita i bók, skrópar úr skóla, er frekur og orðljótur við foreldra sina, en forsprakki í alls lcyns stráka- brellum utan lieimilis. Hann var orðinn svo óþölandi, að foreldr- ar hans scndu hann til Reykja- vikur til rannsóknar. Þau vildu vita, hvers konar illur andi væri hlaupinn í drenginn þeirra, sem einu sinni var svo stilltur og auðsveipur. Það þurfti ekki að lieita til töfralæknis né grafa djúpt eftir ástæðunni. Drengur- inn hafði sjóngalla, sem olli hon- um miklum óþægindum og hindraði hann við lesturinn. Hann var glaður og vongóður, PT'ss þegar hann fór heim með nýju gleraugun sín. En hver bætir honum upp árin, sem hann er búinn að tapa, sjálfstraustið og liið rólega innra öiryggi, sem liann liefir misst? Hver greiðir Framh. á bls. 26. 9 iv: VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.