Vikan


Vikan - 19.01.1961, Blaðsíða 4

Vikan - 19.01.1961, Blaðsíða 4
Stéttaskiptingin meðal unga fólksins er staðreynd 02 fer vaxandi. Skólafólk hefur lítil kynni af hinum, sem fara að vinna eða í iðn- nám og það stafar af því að sameiginleg áhugamál skortir, segir menntaskólastúlkan í viðtalinu. Kvenfólkið er harðara af sér í stéttaskiptingunni. Stúlkurnar 1 MenntasKoianum h<vfa engin kynni af hinuin, sem farnar eru að afgreiða í búðum eða vinna í verksmiðjum. Unga fólkið sækir skemmtistaði eftir aidri og stéttum. Þessi mynd er úr Sjálfstæðishúsinu og þar er að finna yngstu árgangana, sem sækja skemmtanir, en það eru yfirleitt vel upp alin óörn frá góð- um heimilum, eins og heildarsvipurinn ber vitni um. STETTAS eykst stöðugt me VIÐTAL VIÐ UNGA STÚLKU — Þú ert í Menntaskólanum. — Já, hvað með það? — Ekkert. Mig langaði bara til þess að spyrja þig nokkurra spurn- inga um lífið og unga fólkið. Þú þekk- ir mikið af ungu fólki og veizt um lifnaðarhætti þess, er ekki svo? — Ég þekki sand af fólki og líka, hvernig það lifir. ef ég skil spurn- inguna rétt. — Ég meina kannski öllu fremur afstöðu unga fólksins til samborgar- anna, ungra og gamalla. — Hún hefur breytzt mikið á síð- ustu árum. — Hvernig? — Það hefur komizt á stéttaskipt- ing meðal unga fólksins, að minnsta kosti hér i Reykjavík. Kannski er það minna úti á landi. — Verður þú mikið vör við þessa stéttaskiptingu? — Það er ekki hægt annað en verða var við hana. Hún er raunveru- lega komin á, en hún er svo laus i reipunum, að það veldur árekstrum og leiðindum eins og til dæmis, þegar strákar og stelpur fara að vera sam- an, sem eru sitt úr hvoru umhverfi og ekki með sömu menntun. — Hefur þú nokkra tilgátu um það, af hverju þessi skipting muni stafa, sem þú segir, að sé orðin staðreynd? — 1 nútíma þjóðfélagi, ásamt með fólksfjölgun, hlýtur hún að komast á og það er margt sem stuðlar að því. Kannski eiga skólarnir einhvern þátt i þróuninni. — Hvað hafa Þeir gert til Þess? —■ Það var nú gáfnapróf, þegar ég var í gagnfræðaskóla, en það er víst búið að afnema það. Hins vegar er nemendunum skipt I flokka eftir getu eins og sjálfsagt er og það myndar skiptingu. 1 betri bekkjunum er mik- ill meirihluti nemenda frá góðum heimilum og foreldrar þeirra eru sæmilega menntað fólk. — Líta þá betri bekkirnir niður á hina lakari? — Já, það held ég, hvort sem þeir sýna það eða ekki. Þeim finnst krakk- arnir í lélegri bekkjunum vera lægri stétt. — Hvað verður af fólkinu úr þess- um lakari bekkjum? — Það heltist úr lestinni og fer að vinna og margir fara í einhverjar iðngreinar og þá i iðnskóia. — En hinir halda áfram skóla- göngunni — eða hvað? — Þeir fara i landspróf og reyna kannski tvisvar, ef þeir eru óheppn- ir. Margir eru latir við lærdóm um þettá leyti, þótt þeir séu ágætlega gefnir. Nokkuð stór hluti af þessu fólki fer svo í menntaskóla eða verzl- unarskóla og sumir hætta við frekari skólagöngu eftir landsprófið. — Nú vilt þú meina, að þarna sé komin á skipting. Heldurðu að þess- ir unglingar umgangist mikið, þeir sem komnir eru í framhaldsskólana og hinir, sem farnir eru að vinna eða eru í iðnnámi? — Nei, þeir umgangast litið. Það er þá frekar, að stelpurnar héðan úr Menntaskólanum þekki stráka, sem eru i einhverju iðnnámi, en stelp- urnar í Menntaskólanum, sem ég þekki nú bezt, umgangast alls ekki stelpur, sem farnar eru að vinna. Það er lengst bil milli þeirra. — Kvenfólkið er þá öllu harðara Stéttaskiptingin byrjar að einhverju leyti í skólunum. Þar heltast sumir úr lestinni og hverfa til atvinnulífsins. Stúlkur úr iðnstétt hafa lítið sam- band við menntafólk; það er þá helzt kunningsskapur við pilta sem bygg- ist á tímabundnu ástarsambandi.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.