Vikan


Vikan - 19.01.1961, Blaðsíða 20

Vikan - 19.01.1961, Blaðsíða 20
Vinir, hve oft er hér amstur og strit svo ekki sýnist þar nokkurt vit, allt sem viö gerum er örlögum háö, allt er í himneskar bœkur skráö, tölur sem eiga töfraseiö, tæla okkur svo oft af leið. Allt er reiknaö og ritaö á blaö, rúnir, sem boöa okkur þaö: Viö komum aXlir, allir, allir upp til himna í unaössælu, í unaössælu. Þá brosir Pétur blítt, hann blessar svo milt og þýtt: þiö veriö öll aö englum, allt er nýtt og hlýtt. Þarna uppi er allt bjart og blátt, blikandi dýrö í jaröarátt. Övinir faömast og elskast lieitt, öllum er himnanna gleöi veitt. Opnast þá 'hliöin upp á gátt, allir dansa í sátt. Himininn Ijómar svo hár og stór, hljómar viö englakór: Viö komum allir, állir, állir. o.s.frv. bréfaviðskipti Noél Guillon, Campostal, Rostrenen, Cótes-du Nord, Frakklandi óskar eftir að komast í kynni við einn eða tvo drengi á þrettán ára aldri. Auður Þórhallsdóttir, Vitastíg 2, og Bergþóra Loftsdóttir, Linnetsstíg 14, í Hafnarfirði óska eftir bréfaviðskipt- um við pilta eða stúlkur í Keflavik eða Reykjavík á aldrinum 15—17 ára. Nú er verið að leika „Billy Boy“ í mörgum útsetningum, en það lag skýt- ur upp kollinum á nokkurra ára fresti. Loftur Guðmundsson hefur samið texta við lagið fyrir nokkrum árum og viljum við koma honum á framfæri, þar sem ekki er öllum kleift að syngja enska texta enda- laust, enda er íslenzki textinn stór- skemtilegur. VÍSAN UM JÓA Badminton er orðin nokkuð vinsæl íþrótt hér á landi. Það er alhliða þjálfandi íþrótt, sem kemur mönnum að töluverðu gagni í öðrum íþróttar- greinum. Það er yfirleitt mjög hraður leikur, þó menn geti í ieik ákveðið nokkuð um hraðan og er þvi mjög heppileg til þjálfunar viðbragðsflýti og skerpu. Badminton er leikin ein- liða og tviliða eins og tennis, enda í mörgu líkt. En badminton er miklu Tökum lagiö, lyftum skál, meira fjör, meira fjör meira fjör,— ekkert rjál, sagöi Jói. Þegar vermir veigabál veröur létt um söng og mál. Nú er röddin þýö og þjál, — sagöi Jói. Þegar gengiö var t dans, — meira fjör, meira fjör, meira fjör, ekkert stanz, — sagöi Jói. Síöuhnykk af völdum hans margur hlaut í Öla skans . . . „Hart á stjórn. — Farvel Franz,“ sagði Jói. Þætti fæstum fært — á sjó, — meira fjör, meira fjör, meira fjör, — viö róum þó, — sagöi Jói. Tæki aö svarra í segli og kló, Jói sat viö stýri og hló. „Á sjó er svigrúm einum nóg,“ sagöi Jói. Þótt hann œtti áldrei neitt, nema aöeins eitt — meira fjör, meira fjör, — ei annaö neitt, baö hann Jói. „Gæti ei fjöriö manni fleytt gegnum lífiö yfirleitt, kemur stríöiö út á eitt,“ sagöi Jói. Tökum lagiö, lyftum skál, —• meira fjör, meira fjör, meira fjör, drekkum skál þína, Jói. „Þegar vermir veigábál, veröur létt um söng og mál. Nú er röddin þýö og þjál,“ sagði Jói. L. Guðmundsson. VIÐ KOMUM ALLIR, ALLIR... Sungið af Sigurði Ólafssyni á plötu Islenzkra tóna. Og hér þræðir hann strengi í spaða. gæta ástand spaðans, masla þol hans. Og eftir því ásigkomulagi fer streng- ingin fram. Vandaður spaði getur orð- ið sem nýr, þótt strengirnir hafa bilað. Hann þolir fulla strekkingu og verður stinnur og því allt annað vopn, en spaði sem ekki þolir nema litla strekkingu og gefur ekki nema til- tölulega veikt högg. 1 spaðana er ýmist notað nælongirni eða görn. Garnirnar eru öllu sterkari, þola upp að 14 punda átak, en nælon 11 til 11%. Þessvegna er til lítils að hafa garnir í lélegan spaða, sem raunveru- lega þolir ekki fulla strekkingu, Þar væri nælon betur komið. Hver streng- ur er strekktur sér og miðstrengirnir langs og þvers hafa mesta þennslu, en svo slakar á til hliðanna og til end- ana. Valdimar sýnir hvernig slá á boltann. léttari að yfirbragði heldur en tennis og að mörgu leyti stórum fallegri leikur. Til marks um það, hvað leik- urinn er harður má nefna það, að vanir leikarar horfa aldrei á boltann, heldur einbeita þeir sér að þeim punkti á vallarhelmingi andstæðings- ins, þar sem Þeir ætla sér að láta bolt- ann koma niður. Að ná boltanum er orðið sjálfvirkt, leiknin er að koma boltanum þeim mun hraðar til and- stæðingsins. Það er engum blöðum um það að fletta, að badminton mun njóta æ meira hyllis, sérstaklega þegar hús- næði til iðkana er fyrir hendi í rikara mæli en nú er. Á myndinni fyrir neðan sést Valdi- mar L'marsson setja strengi í spaða. Áhaldið sem hann notar er útbúið á ýmsan hátt til að tryggja sem beztann árangur. Meðal annars er lóð sem mælir styrkleika eða þennslu strengs- ins. Þetta mun vera frekar vandasamt verk og er þó öllu léttar en venjuleg- ar handstrekkingar. Þegar strengir eru settir í spaða, þarf fyrst að að- Garðar Þ. Garðarsson. — Nú, ertu vondapur um árangur- urinn? — Ekki vil ég segja Það. En það getur margt komið fyrir. Lestu kannske illa? -— Hm. Við skulum ekki hafa hátt. — Nei, nei. Engann hávaða. Er ekki annars hundleiðinlegt í skóla? — Jú, ég er nú hræddur um það. Það er hreinasta kvöl að standa í þessu landsprófsstússi. Eg lít á það eins og hvert annað skítverk, sem ég verð að leysa af hendi, til þess að komast í menntaskóla. — Já, þurfið þið ekki að vera t.d. velkunnugir hverri hjáleigu á Islandi, til þess að geta leyst landafræðiprófið sómasamlega af hendi? — Að minnsta kosti. Og ég efast um að kennarinn gæti svarað öllum þeim spurningum, sem hrúgað er upp á hverju prófi. — E'kki er gott í þér hljóðið. En hefurðu ekki áhugainál til þess að dreifa huganum frá þessum óskapn- aði? •— Ég er nú hræddur um það. En það vill vefjast fyrir manni tima- skiptingin milli áhugamálanna og námsins. Það er ábyggilega ekki undir sextíu tíma vinnuvika við námið, ef tekið til, þá þori ég varla að ganga um, til þess að koma nú ekki öllu úr- lagi aftur. Og svoleiðis nokkuð er mjög slæmt á mínum viðkvæmna aldri. — Ertu á viðkvæmum aldri? — Hvað er þetta? Hafið þið ekki lesið greinarnar hans dr. Matthíasar í Vikunni? Þar stendur meðal annars ýmislegt um skilningsleysi foreldrana í garð barna sinna. Þetta hafa mínir foreldrar lesið, enda hef ég það orðið eins og blóm í eggi. Makt vísindanna er mikil. — Þú segir nokkuð. Okkur skilst núna, hvað við höfum átt dapra æsku. Þú reykir og drekkur auðvitað eins og allir velmenntaðir unglingar nú á dögum? —■ Það er nú smá gat í menntun minni. Mér leiðist tóbak fram úr hófi, en er sólgin i sígarettukveikjara sem tákn framvindunnar. Og brennivín er nú ekki mitt benzín, skal ég segja ykkur. Ég leyfi mér að vera ófullur við öll tækifæri. — Þetta er nú bara sérvizka í þér. ■— Já, ég er laglega vitlaus að taka ekki þátt í þessum þætti menningar okkar. En ég get vitaskuld ekki gert allt i einu og þess vegna læt ég þetta liggja afsíðis í mínu lífi. íþróttir textinn úr h&pnum' — Það er ekki nóg að standa fyrir framan Menntaskólann. Það þarf dá- lítið meira til að vera þar innan- veggjamaður. Þannig fórust Garðari Þ. Garðarssyni orð er við kipptum af honum mynd fyrir utan menntasetrið. — Þú ert kannski að búa þig undir að komast Þar inn? — Já, ég hef nú verið að reyna það, en það er ekki gott að vita hvar það endar. vel á að vera, svo að þið sjáið í hendi ykkar hvernig áhugamálin hafa það. — Já, þar er ekki feitan gölt að flá. En þessi áhugarnál þín. Hver eru þau ? — Ég er mikið í útilegum um helg- ar, ef þvi verðu-r við komið. Svo er nú hitt og þetta dund, mótelsmiði og lesning á tækniritum Svo fer dálítill tími i að taka til i herberginu hjá sér þegar enginn annar nennir þvi. — Ertu latur við slíkt? — Æ, já, mér leiðist það nú frekar. Það bregst ekki, að hafi ég sjálfur zn VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.