Vikan


Vikan - 19.01.1961, Blaðsíða 34

Vikan - 19.01.1961, Blaðsíða 34
hafðl engan annan e« sjálfan síg á að treysta í hamingjuleitinni. Rósi mætti góðu atlæti á Hernum, og eftir að hann hafði jafnað sig þar einn sólarhring, tók tilveran að fá á sig ögn viðkunnanlegri blæ, kyrrð færðist á innyflin, og jörðin varð stöðugri undir fæti. Rósi tók smátt og smátt að endur- heimta bjartsýnisvon sína, hvað kvennamálin snerti. Undir rökkur næsta dag hafði hann rakað sig og þvegið og greitt, klæðzt nýju skyrt- unni og sléttað mestu hrukkurnar á buxunum sínum með þvi að liggja á þeim yfir nóttina. Síðan kastaði hann sér út í liring- iðu umferðarinnar á götum borgar- innar og tók að virða fyrir sér hið framandi stórborgarlíf. Það var margt, sem bar fyrir augu Rósa, en ekkert var þó, sem vakti athygli hans og áhuga eins og allt það kvenfólk, sem bar fyrir hann á götunum. Aldrei hefði Rósi getað ímyndað sér, að önnur eins ósköp væru til af stúlkum. Þær streymdu þarna fram og aftur um göturnar, stundum ein og ein, stundum tvær, þrjár eða fjórar kræktar saman á olnbogun- um, cg stundum margar saman i hóp — eins og fjárbreiður. Þarna voru stúlkur á öllum aldri, hávaxnar og lágvaxnar, grannar eða gildvaxnar, herfur og glæsikvendi og allt þar á milli. Þarna voru stúlkur með stutt- klippt hár, stert tða topp, og öðr- um féll siður haddar um herðar. Augu þeirra ljómuðu og sindruðu í margbreytilegri litadýrð, og frá — Þetta er bezta verk mitt hingað til, — ég hef unnið að því undan- farin þrjú ár. þeim barst loklcandi ilmor eg angan, sem steig Rósa til höfuðsins. Rósi komst eklci hjá þvi að öfunda þá lukkupamfíla, sem gengu með eina eða fleiri af gyðjum þessum upp á arminn, því að enn bar að þeim ógæfubrunni, að þrátt fyrir þessa ógnarlegu mergð virtist eng- in vera sérstaklega honum ætluð. Það tók af öll tvímæli, hvað snerti þær, sem þannig gengu með herra sér við hlið. Aðrar báru þess ein- hver merki að eiga sér liauk i horni, og ýmsar virtust líka ekkert frcist- andi, svona við fyrstu sýn. En þarna voru einnig margar eigulegar hnákur, sem fóru einar sér, og það var ekkert ólíklegt, að þær væru að svipast um eftir þeim, er korna skyldi. Og hví skyldi það ekki geta verið, í einhverju falli, að Rósi i Dal væri einmitt sá, er koma skyldi? Að minnsta kosti virt- ist það hlægileg fjarstæða að láta sig vanta kvenmann hér I þessari borg, þar sem ekki varð þverfótað fyrir kvenfólki. Rósi hafði vitanlega komizt i það að vanta eitt og ánnað. Hann hafði til dæmis stundum orðið fyrir þvi að verða tóbakslaus, en það var þá vegna þess, að hvergi var tóbaks- ögn að fá. En að nokkur þyrfti að liða skort í allsnægtunum, var of- vaxið skilningi Rósa, og hann ætl- aði hreint ekki að sætta sig við slíkt. Nú skyldi til skarar skríða og ekki látið staðar numið, fyrr en sú rétta væri fundin. LDREI skyldi það viðgang- ast, að þetta þjáningarríka ferðalag og allur þessi til- kostnaður hefði ekki við- unandi úrlausn í för með sér. Hann skyldi, hann skyldi. Galdurinn var aðeins sá að hitta á þá réttu. Rósi hélt áfram að berast með straumnum, eins og verkast vildi. Allt í einu beindist athygli hans að stúlku, sem stóð ein síns liðs við búðarglugga. Þetta var ung stúlka, snotur og fönguleg, i hárauðri kápu og með samlitan kolluhatt á hnakk- anum. Rósi staðnæmdist og virti hana rækilega fyrir sér. Þessi stúlka var sannarlega álit- leg og átti áreiðanlega ekki sinn líka heima í Dalssveit. Kannski var hún einmitt sú, sem honum var ætluð? Hví skyldi það ekki geta átt sér stað? Áður en hann vissi af, hafði hann gengið að glugganum og staðnæmzt við lilið hennar. Hann horfði á, livernig gljóbjart liár hennar liðað- ist niður undan hattkollunni og flæddi um mjallhvitt hörundið á hálsi hennar og vöngum. Allt í einu leit hún upp og horfði á Rósa, stórum, himinbláum aug- um, og honum fannst sem hjarta sitt bráðnaði við. En þetta stóð ekki lengur en and- artak. Stúlkan sneri frá glugganum og hélt sína leið án þess að skeyta nokkuð um Rósa. Ósjálfrátt varð lionum að halda i humáttina á eftir henni. Hún hélt áfram, götu úr götu og staðnæmdist við og við hjá búðar- gluggum, og Rósi fylgdi henni eftir, i hæfilcgri fjarlægð, án þess liún veitti því eftirtekt. Hann virti fyrir sér göngulag liennar og baksvip og fannst hún æ þekkari eftir þvf sem lengur leið. Hann hætti að virða annað kven- fólk viðlits og skeytti engu öðru en þvi að missa ekki sjónar af þessari nýfundnu venusstjörnu. Eftir þvi sem leiðin lengdist, sem hann fylgdi henni eftir, fann hann betur og betur, að þetta var ein- mitt hans stúlka, og hann varðaði ekki framar um nokkra aðra. Hann veitti þvi eftirtekt, að fót- leggir hennar voru óvenjulega bústnir og fyrirferðarmiklir, svo að hann hafði ekki áður séð aðra slika. Svona kálfar mundu sannarlega vekja athygli heima í Dalssveit. — Hún stendur ekki aldeilis á horleggjunum kærastan hans Rósa, — þessi, sem hann kom með að sunnan, mundi fólk segja. Hann dáðist að, hversu þéttvax- in hún var um lendarnar og livernig hún vingsaði léttilega til hægra handleggnum og hve snoturlega henni fór lítið, rautt veski, sem hún bar í ól yfir öxlina. Ekki dugði þessi skratti; hann varð að láta til skarar skriða og hafa tal af stúlkunni. Hann herti gönguna, unz hann komst á hlið við hana. — Góðan daginn, mælti hann hásri röddu, en datt samstundis i hug, að réttara hefði verið að segja gott kvöld, þar sem svo áliðið var dags, en lét þó sitja við orðinn lilut. Stúlkan leit upp og virti Rósa fyrir sér i fljótu bragði, og honum heyrðist ekki betur en eitthvað mumpaði i henni, en ekki var hægt að segja, að hún tæki kveðjunni liflega. En það kom alveg heim við það, sem ferðafélagar hans höfðu sagt honurn, að það væri alveg und- antekning, ef stúlka sýndi ekki málamyndatregðu við fyrstu at- rennu. — Gott er blessað veðrið, hélt hann áfram og hafði ekki tekið eftir því, að skollinn var á útsunnan- strekkingur með slydduéljum. Ekki gat Rósi heyrt, að stúlkan tæki neitt undir þetta, heldur sneri á braut, hélt sitt strik og fremur greikkaði sporið. Þetta var ekki uppörvandi. En Rósi ætlaði ekki að láta brjóta úr sér bakfiskinn að óreyndu og herti gönguna að sama skapi. Þau voru nú komin úr aðalum- ferðinni og í fáfarnari götur. Rósi þóttist vita, að stúlkan hlyti brátt að vera komin á leiðarenda, og því ekki seinna vænna að aðhafast eitt- hvað verulegt. Hann snaraðist al- veg upp að hlið stúllcunnar og sagði kurteislega: — Það er sosum velkomið, að ég haldi á töskunni fyrir þig. Um leið gerði hann sig liklegan til að grípa i ólina, sem lá yfir öxl hennar. i i I : i i j ; ENNILEGA misskildi stúlkan hinn fróma tilgang Rósa, þvi að hún vatt sér snögglega til hliðar, en Rósi hafði náð taki á ólinni, og var ekki á þvl að sleppa, svo að ólin slitnaði og liann liélt veskinu eftir. Stúlkunni var nú auðsjáanlega ekki farið að litast á blikuna og tók á rás án þess að hirða um veskið. Rósi hikaði augnáblik, en siðan tók hann einnig til fótanna á eftir henni, og af gömlum fjármanns- vana leitaðist hann við að komast fyrir stúlkuna, sem var ótrúlega spretthörð á sínum digru fótleggj- um. Sennilega hefði Rósi fljótlega gef- izt upp og látið stúlkuna sigla sinn sjó, ef ekki hefði verið veskið, sem nú var i hans hðndum. Sfzt hafði honum verið í hug að ræna hana því. Hann tók nú að hrópa eftir stúlk- unni: — Hæ, hérna er taskan þtn, ætlarðu ekki að taka við töskunni? Þcgar stúlkan skeytti þessu ekki og linnti ekki á spretti, skauzt Rósi fram fyrir hana, tók hana i fangið og hélt henni fastri. Stúlkan brauzt um á hæl og hnakka, barði frá sér og var hin fólskasta, en Rósi reyndi að forðast meiðingar, en lét hana ekki smjúga sér úr greipum. Skárri voru það nú umbrotin. Nú, — en eftir þvf sem ferðafélagar hans höfðu sagl hon- um, var þetta ekki meira en búast mátti við. — Ekkert nema vera kaldur og ákveðinn, höfðu þeir sagt, — það eina, sem gildir, er að vera nógu ákveðinn. Fari það í helviti, hann skyldi svo sannarlega vera nógu ákveðinn. Það var vaí'alaust nokkuð vinnandi til hennar þessarar. Hún hlaut að fara að dasast og taka sönsum, manneskjan, svo að hún yrði við- mælandi. Hann fann lokka hennar strjúkast við vanga sinn, og heitur andardráttur hennar lék um andlit lians. Ilöfugur ilmur barst að vitum hans, blómaangan, áfeng og Ijúf. Kápan hafði svipzt frá henni i átök- unum, og hann fann ylinn frá líkama hennar leggja til sín gegn- um þunnan klæðnaðinn. Átök henn- ar og viðnám tók að koma blóði hans á hreyfingu, og hann fann vakna hjá sér ofsalega ástríðu. Þau héldu áfram að stimpast stundarkorn enn, og Rósi gerði sér enga grein fyrir því, hvort sú stund var stutt eða löng, hann gleymdi sér gjörsamlega í þessum leik og naut hans i algleymi. Allt í einu gneistaði allt fyrir augum hans, — það varð rautt, dimmt og síðan ekkert ineir. Það, sem Rósi skynjaði næst, var, að hann var á fljúgandi ferð í ein- hverju farartæki og á hvora hlið hans sátu svartklæddir stríðsmenn og liéldu um handleggi hans, heljar- tökum, eins og þeir ætluðu að nísta hold frá beini. Eftir skamma stund stöðvaðist farartækið við skuggalegt steinhús, og striðsmennirnir sviptu Rósa út og hröktu hann inn í þröngt and- dyri og síðan inn í enn þrengri gang, opnuðu þar litla hurð og skutu honum inn fyrir dyrastaf og skelltu síðan í lás. Það tók Rósa nokkra stund að átta sig á, hvar hann væri niður kominn. En þegar honum tók að birta fyrir augum, svo að liann sá þröngan klefann með gluggaboru upp undir þaki og ekki aðra innan- stokksmuni en rúmflet upp við vegg- inn, áttaði hann sig nokkurn veginn á þvi, hvernig komið var. Þetta umhverfi þelckti liann úr skáldsögum, sem hann hafði lesið. Hann lét fallast niður á fletið og engdist þar sundur og saman i heiftarlegum gráti. Ef til vill grét hann vegna þess, að hann hafði verið rangindum beittnr, eða þá vegna þess, að honum hafði mis- tekizt að finna þá réttu. Það var honum fyllilega ofvaxið að grafast fyrir rætur þessa harmleiks, að- eins óskaði hann þess i hjarta sfnu, að hann hefði aldrei látið sér til hugar koma að fara að heiman frá Dal I Dalssveit, þar sem allir voru honum góðir. ★

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.