Vikan


Vikan - 19.01.1961, Blaðsíða 8

Vikan - 19.01.1961, Blaðsíða 8
Hann hikaði og hugsaði sig um. en sagði svo: „Eg spurði hana að Því, Þegar ég var örstutta stund einn með henni. Hún sagði aðeins: „Sé maður giítur, hlýtur maður að vera Það." — Auðvitað var Þetta nærgöngul spurn- ing, Því að ég gat sjálfur séð, að hún var gráti nær. Hudson hafði verið andstyggilegur við hana allt kvöldið." Ég gat vel gert mér veizluna i hugarlund. — Svo sagði ég allt í einu bálreiður: „Því giftist hún honum? Hún hefði getað fengið hvern okkar sem var.“ „Þetta hefur atvikazt svona," sagði hann kuldalega. „Þeir beztu lenda á Þeim verstu, bliðlyndustu konurnar taka kaldlyndustu mennina." Andlit hans var rólegt og sviplaust, eins og Það hafði verið alla leiðina frá London. En ég sá, að hendur hans krepptust um stýrið, og I fyrsta skipti hafði hann ekki fullt vald yfir bílnum. Ég sagði dauflega: „Við þvi er ekk- ert hægt að gera." 2 „Kannski, að Þú hafir rétt fyrir þér." E'ftir minni ósk gistum við um nóttina í Poitiers. Það kom í ljós, að Trevor vav ágætur og örlátur gest- gjafi Hann hafði góða þekkingu á öllum réttum og drykkjarföngum, og næsta morgun sagði hann mér meira um St. Radegondekirkjuna en ég vissi sjálfur. Samt sem áður var mér ekki rótt. Milli samræðna okkar voru langar Þagnir, og þá var eins og hann væri með hugann í órafjarlægð. Hann var mjög taugaóstyrkur, ræskti sig í sí- fellu og fitlaði við flibbann, og því dró ég Þá ályktun að hann væri að flýja eitthvað. „Þér virðist það kannski undarlegt, en mig langar til að halda ferðinni áfram í kvöld. Það er dálítið, sem ég er bundinn við. f rauninni hef ég nægan tíma, en alltaf getur eitthvað komið fyrir. Þessi staður gerir mig órólegan. Þú getur verið hér eftir Þar til á mánudag." Ég varð að taka skjóta ákvörðun. Ég gat með engu móti sagt honum, að mér leiddist í Poitiers. Hins vegar gat ég ekki látið manninn aka einan áfram svona á sig kominn. Loks gat ég sannfært hann um, að ég hefði komið með í Þessa ferð til þess að njóta félagsskapar hans. Við fórum aftur í gistihúsið og gengum frá farangri okkar. Á meðan var hann alltaf öðru hverju að reyna að draga úr mér um að koma með, — og stuttu eftir kvöldmat vorum við komnir af stað. Hálísofandi spurði ég hann einu sinni: „Trevor, ertu nokkuð veikur?" Hann svaraði því ekki. Það birti, um leið og við ókum nið- ur í djúpan dal með háum fjöllum allt í kring. Upp úr þykkni furu- trjánna risu þverhníptir hamrar. Við stönzuðum við gistihús, þar sem Trevor virtist kunnugur. Yfir morgunverðinum sögðum við varla orð. Ég var enn syfjaður, og Trevor var i þimgum þönkum. En þegar við stóðum upp frá borðinu, sagði hann með þeirri festu, sem að- eins kemur eftir erfiða ákvörðun: „Jæja, ég skil þig eftir hér. Ég vona, að ég geti sótt þig á morgun. Er þér ekki sama? Það er ekki mikið um að vera hér, en það er hægt að fara i skemmtilegar gönguferðir, og hér er framreiddur ágætur matur.“ Ég hafði nú hugsað mér að spyrja ekki fleiri spurninga, en fannst ég verða að segja: „Ég er að velta því fyrir mér, Trevor, hvort eitthvað sé að þér.“ „Þvi heldur þú það?" svaraði hann mjög kuldalega. „Jæja, ég veit ekki, hvert þú ætlar, en ég hef hugboð um, að þú sért þreyttur og þarfnist kannski ein- hverrar hjálpar." Við stóðum við bílinn, og hann starði stöðugt á vélarrúmið. eins og þar væri að finna einhver skilaboð, sem hann einn gæti skilið. „Ég hefði átt að segja þér það, en mér fannst það svo kjánalegt. Ég er að fara til Mont Lipaux, sem er tutt- ugu kílómetra héðan." „Mont Lípaux?" — Ég mundi óljóst eftir blaðafyrirsögnunum um árekstra og slys í Mont Lípaux. „Já,“ sagði hann óstyrkur og leit á mig. „Það fer fram kappakstur þar. Það er um 30 kílómetra braut." „Og ætlar þú að fara og horfa á hann ?“ „Nei, ég er skráður þátttakandi i honum." „Hamingjan hjálpi mér.“ „Ég veit þetta allt. Ég er þrjátiu og sjö ára gamall, og ég hef ekki ekið neitt að ráði nema þetta siðasta ár. Ég er eins taugaóstyrkur og þér sýnist. Mig langar til að sanna, að ég get gert þetta eins vel og hver annar.“ „En hvers vegna? Hverjum ætlarðu að sanna það?“ „Sjálfum mér, býst ég við.“ Einhvern veginn fann ég það á mér, að þetta gat ekki verið satt. „Og þú vilt síður, að ég horfi á?“ spurði ég. „Já, ég vildi frekar fara þangað einn. Taktu mér það ekki illa upp.“ Það var ekki nema skemmtilegt að eyða einurn eða tveimur dögum í þessu umhverfi, og ég hafði líka i hyggju að fara að ósk Trevors. En um kvöldið komu þrir Englendingar, tveir bræður og sonur annars þeirra, og virtust það vera rólegir. menn. Þegar þeir buðu mér að borð;nu til sín, varð ég þess áskynja, að þeir höfðu mikinn áhuga á kappakstri. Þeir ætluðu næsta morgun til Mont Lipaux — eða réttara sagt að vissum stað við brautina, sem hét Tour d‘ Annibal, en þaðan var hægt að sjá yfir hættulegustu beygjurnar. Þeir spurðu, hvort ég hefði löngun til að koma með. Þeir áttu meira aö segja auka-aðgöngumiða, sem mundi að öðrum kosti verða ónýtur. I rauninni langaði mig ekkert til að fara þangað. Ég hef ógeð á sýn- ingum, þar sem leikið er með lif og dauða. En þó að ég tæki boðinu, mundi það ekki skaða Trevor neitt, og ég hugsaði með mér, að kannski gæti ég orðið til hjálpar, þegar þessu heimskulega fyrirtæki lyki og ég fyndi hann þreyttan og sigraðan, jafnvel með taugaáfall. Ég tók boð- inu. Næsta morgun komum við stuttu fyrir klukkan tiu á staðinn. Kappakst- urinn átti að byrja klukkan ellefu. Við sáum yfir tíu kílómetra af brautinni. Fyrst sáum við bílana í dæld á tindinum á Mont Lipaux. Það- an urðu þeir að aka 950 metra niður á við og það á vegi, sem leit út eins og stigi, sem hefur skyndilega orðið vitlaus, — hinar þverbeygöu skörpu Framhald á bls. 33. Q vikaN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.