Vikan - 04.11.1943, Síða 1
Nr. 44, 4. nóvember 1943.
Lögskipaðar
r
Vikan flytur nú á forsíðu X'
mynd af Þuríði Bárðardóttur, sem
Ijósmœður
Reykjavík.
verið hefir lögskipuð Ijósmóðir í
Reykjavík síðan árið 1905, for-
maður Ljósmœðrafélags íslands
frá stofnun þess og ritstjóri Ljós-
mœðrablaðsins frá því það hóf
göngu sína, Einnig birtum vér
myndir af þeim öðrum lögskip-
uðu Ijósmœðrum í Reykjavík, sem
hœgt var að ná í myndir af.
Maðurinn kemst ekki hjálparlaust í
heiminn og er algerlega háður um-
hyggju annara fyrstu hérvistarár
sín og móðirin leggur líf sitt í hættu við
hverja fæðingu, svo að það ætti að vera
öllum mönnum ljóst, hve ábyrgðarmikið
starf ljósmæðranna er. Enda hafa margir
foreldar metið það vel og að verðleikum,
en kjör og aðbúnaður þessara þörfu hjálp-
arkvenna sjaldan verið eins og þurft hefði
við hina þjóðnýtu vinnu þeirra.
1 „Skipun heilbrigðismála á Islandi“,
sem Vilmundur Jónsson landlæknir hefir
samið, segir frá því, að árið 1749 hafi
verið útgefin á prenti fyrsta kennslubók
í ljósmóðurfræði á íslenzku. Voru það
biskuparnir á Hólum og 1 Skálholti, sem
stóðu að útgáfunni. 1 kaflanum „Tímamót
í heilbrigðismálasögu íslands" segir m. a.:
„Hér er fyrst og fremst að greina ráðstaf-
anir til að sjá íslenzkum læknaefnum fyrir
fræðslu (1760) og ljósmæðrum fyrir nokk-
urri tilsögn (1760), en í sambandi við það
verða til hin fyrstu drög til héraðslækna-
og Ijósmæðraskipunar (1766).“ í „Heil-
brigðismálaskipunin um miðja 19. öld“
steridur þetta m. a.: „Á eftir læknaskipun-
inni hafði annað höfuðverkefni stjórnar-
Framhald á bls. 3.
Þuríður Bárðardóttir ljósmóðir.