Vikan - 04.11.1943, Side 2
2
VIKAN, nr. 44, 1943
Pósturinn
Lóa Eiríksdóttir á bréf í vanskil-
nm á skrifstofu Vikunnar.
Kæra Vika!
Mér virðist þú stundum svo anzi
minnisgóð að mig langar til að vita,
hvort þú manst það, sem ég get ekki
munað. Eftir hvern er vísan „Heim-
þrá manna er heiðin greið," sem fékk
einu sinni fyrstu verðlaun í vísna-
samkeppni, sem „Nýjar Kvöldvök-
ur“ stofnuðu til fyrir löngu síðan?
Svar: Hún er eftir Benedikt Ein-
arsson, en hann var fæddur 18.
ágúst 1852 á Hallanda á Svalbarðs-
strönd. Hann bjó lengi að Hálsi í
Eyjafirði. Vísan er svona í „Stuðla-
málum“:
Heimþrá mann er heiðin greið,
huldir liggja þræðir
anda hans, er leiða leið
ljúft á Sigurhæðir.
Svar til „Fróðleiksfúss“:
Það er ekki gott að dæma um það,
sem þér eruð að spyrja um, þegar
allar aðstæður eru huldar þeim, sem
svara á. Væri ekki reynandi að lesa
tvo fyrstu békkina utanskóla á einu
ári og taka síðan próf upp í þriðja
bekk. En sjálfsagt er að athuga vel,
hvað lesið er i skólanum áður en
byrjað er á þessu.
Svar til „Sveitastúlku“:
Skólagjöld í Húsmæðraskóla Rvík-
ur eru sem hér segir: Heimavist, í
9 mánuði, kr. 1100. Heimanganga, í
4% mánuð, kr. 600. Kvöldnámskeið,
5 vikur, kr. 80,00.
Svar tii „E. H.“:
Við getum ekki fengið upplýsingar
um það, sem þér viljið fá a,ð vita.
Svar til „Fáfróðs":
Þetta er svo umfangsmikil spum-
ing og auk þess er það, sem þér
spyrjið um svo miklum breytingum
háð, að við getum ekki svarað henni.
Kæra Vika!
Viltu gjöra svo vel og svara eftir-
farandi spurningu. Hvaða númer
hlutu vinning í Happdrætti verk-
stjórasambands Islands, sem dregið
var í hjá lögmanninum í Reykjavik
15. des. 1942. Með fyrirfram þökk.
Ég sjálfur.
Svar: Það voru þessi númer (birt
án ábyrgðar!): 3714, 6616, 549,
3155, 2912, 3931, 198, 5931.
Svar til „Vordísar":
Þau kostuðu kr. 15 á ári og eina
krónu í lausasölu.
Kæra Vika!
Ég veit að þú ert mjög fróð. En
af því að ég vona, að ég fái svar við
spurningum mínum sem ég hefi lagt
fyrr þig þá langar mig að segja þér
mjög gott ráð til að ná vörtum af.
Ég hefi séð að þú ráðleggur margt
en ég hefi aldrei séð þig birta það
ráð sem ég nú segi þér. Ég hefi sjálf
reynt þetta með mjög góðum árangri.
Ég skar í sundur hráa kartöflu og
hráan lauk. Síðan lét ég þetta á
skál og lét það liggja á skálinni i
hálfan sólarhring. Af þessu samsulli
myndaðist safi sem ég siðan bar á
vörturnar sem voru nokkuð margar.
Þetta endurtók ég fjögur kvöld i röð
og eftir það fóru þær að smáminnka.
Eftir rúma viku voru þær allar farn-
ar. Ég ráðlagði þetta stúlku sem
hafði ljóta vörtu á neðri vör og hún
fór að ráði mínu og vartan hvarf.
Þetta vona ég að verði fleirum að
liði sem hafa þessar leiðinlegu vörtur.
Spurul.
Katrín mikla.
H.f. Leiftur hefir nýlega gefið út
bók um Katrinu miklu eftir Gina
Kaus, en Freysteinn Gunnarsson hef-
ir þýtt bókina á islenzku. Þetta er
mikið rit og skemmtilegt og fylgja
því ágætar myndir. Bregður það ljósi
yfir ástand það, sem rikti í Rúss-
landi á 18. öld.
Katrín II. Alexejeva (1729—96)
hét réttu nafni Sofia Frederika
Augusta og var dóttir þýzks fursta.
Hún trúlofaðist rússneska ríkiserf-
ingjanum Karl Peter Ulric. Árið 1744
gerðist hún grisk-kaþólsk, og ári
seinna giftist hún ríkisarfanum. —
Hjónabandið var ekki hamingjusamt.
Það var ætlun Katrínar miklu að
gera Rússland að menntuðu stórveldi,
„upplýst einveldi," samkvæmt kenn-
ingum Voltaire. 1762 heppnaðist þess-.
ari fögru og gáfuðu konu að steypa
Pétri III. af stóli. Hann var myrtur.
Katrín var nú á 34. aldursári einráð
í Rússlandi. Með mörgum endurbót-
um fyrir áhrif hins upplýsta tíma,
gerði hún Rússland að raunverulegu
stórveldi. Samtímis lét hún leiðast ut
í mesta ósiðlæti, og skipti oft um
elskhuga. Af þeim hafði Potemkin
mest áhrif á stjómaraðferðir hennar.
Katrin er ein af merkiskonum sög-
unnar, framúrskarandi gáfuð, en án
allrar siðferðislegrar festu.
Katrín tekur á móti sendiherra Tyrkja.
Stórsleði Katrínar.
í heimsstyrjöldinni
Eftir Jaroslav Hasek
Góði dátinn Svejk.
Síðara
bindi.
Fyrra bindið seldist upp á
svipstundu. Allir, sem eiga
það, þurfa líka að eignast
seinna bindið. Bókin er nú
öll komin út á íslenzku
eftir hinn vel þekkta þýð-
ara Karl ísfeld. —
Útgefandi: VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Kirkjustræti 4, sími 5004, pósthólf 365,