Vikan - 04.11.1943, Síða 7
VIKAN, nr. 44, 1943
7
Lögskipaðar ljósmæður í Rvík.
Framhald af bls. 3.
bjuggu þau í Efra-Holti í
Reykjavík. Meðal barna þeirra
var Jensína, kona Ásgeirs Ey-
þórssonar kaupmanns og María,
móðir Matthíasar læknis Einars-
sonar. Solveig andaðist 1886..
Sólveig Ólafsdóttir frá Hliði
í Reykjavík var fyrst skipuð
ljósmóðir í Kjós 1884, en síðan,
1886, í Reykjavík. Hún var fædd
14. október 1861 og gift Bjarna
trésmið Jakobssyni. Hún and-
aðist 24. júní 1898.
Sesselja Sigvaldadóttir, móð-
ir Sigvalda Kaldalóns tónskálds
og þeirra bræðra, var skipuð
ljósmóðir í Reykjavík 1887. Hún
var fædd 3. maí 1858 að Hvann-
eyri í Borgarfirði og tók próf
í ljósmóðurfræði 1885 hjá
Schierbech landlækni. Sigldi hún
svo til fæðingarstofnunarinnar
í Kaupmannahöfn og tók þar
próf með fyrstu einkunn 1887.
Hún sótti um lausn frá embætti
1903.
Fyrir og um aldamótin 1900
voru í Reykjavík tvær ljósmæð-
ur, sem vér höfum ekki fundið
heimildir fyrir að væru lögskip-
aðai'. Það eru þær Guðrún Tóm-
asdóttir og Sesselja Ólafsdóttir.
Þórunn A. Björnsdóttir varð
ljósmóðir í Reykjavík 1897. Hún
var fædd 30. des. 1859 að Vatns-
horni í Skorradal í Borgarf jarð-
arsýslu. Tæpra 23 ára lauk hún
prófi í ljósmóðurfræðum í Rvík.
Tók hún þá strax að fást við
Ijósmóðurstörf og var lögskip-
uð 1883 í Lundarreykjardals-
og Fitjasóknum í Borgarfirði
og tveim árum síðar í Bæjar-
og Hvanneyrarsóknum i sömu
sveit. Hún sigldi til framhalds-
náms á fæðingarstofnunina í
Kaupmannahöfn árið 1890 og
útskrifaðist þaðan með beztu
einkunn 30. maí 1891. Eftir það
tók hún aftur til starfa hér
heima og var tvö síðustu árin
áður en hún flutti til Reykja-
víkur Ijósmóðir í Þingvallasveit.
Tvisvar fór hún áftur utan til
þess að fullnuma sig, fyrra
skiptið 1911, á fæðingardeild og
Ijósmæðraskóla Ríkisspítalans í
Kaupmannahöfn og 1926 og var
þá á fæðingarspítölum í Bergen
og Osló. Hún andaðist 23. nóv.
1935. Árið 1922 var hún sæmd
riddarakrossi Fálkaorðunnar.
Þórdís J. Carlquist varð lög-
skipuð ljósmóðir í Reykjavík
haustið 1904. Hún er fædd 19.
október 1879 að Hofi í Svarfað-
ardal í Eyjafjarðarsýslu. Fór
hún ung til föðursystur sinnar,
Snjólaugar Þorvaldsdóttur frá
Krossum, konu Sigurjóns Jó-
hannssonar á Laxamýri. Haust-
ið 1902 fór Þórdís til Reykjavík-
ur og hóf ljósmóðurnám hjá
Jónassen landlækni, en gekk til
sængurkvenna með Þórunni
Björnsdóttur ljósmóður. Þórdís
tók próf 5. jan. 1903 og sigldi
um haustið til framhaldsnáms á
fæðingarstofnunina í Kaup-
mannahöfn og lauk prófi þaðan
í október 1904. Kom hún þá
strax heim og fékk skipunar-
bréf 1. nóv., en byrjaði ekki að
vinna fyrir alvöru að Ijósmóður-
störfum fyrr en um áramót
1905. Hún hefir alltaf síðan haft
kennslu ljósmæðranema á hendi
og er svo enn. Þórdís giftist
1915 Axel Vilhelm Carlquist,
kaupmanni í Reykjavík. Árið
1939 var Þórdís sæmd riddara-
krossi Fálkaorðunnar.
Þuríður Bárðardóttir var lög-
skipuð ljósmóðir í Reykjavík
árið 1905. Hún er fædd 14.
ágúst 1877 að Raufarfelli undir
Eyjafjöllum. Foreldrar hennar
voru Bárður Pálsson bóndi og
Ólöf Ólafsdóttir kona hans.
Þuríður dvaldi að mestu í for-
eldrahúsum, þar til hún sigldi
til Kaupmannahafnar árið 1902.
Tók hún þar þátt í ýmsum nám-
skeiðum, aðallega í verklegum
fræðum, en stundaði ljósmóður-
nám við fæðingarstofnunina
1904—1905 og lauk þaðan prófi
1905. Kom hún þá strax hingað
heim og hóf ljósmóðurstörf í
Reykjavík og hefir stundað þau
óslitið síðan. Þuríður var kenn-
ari Ljósmæðraskólans í Reykja-
vík 1905—1931 og prófdómari
við sama skóla, sem nú ber
nafnið Ljósmæðraskóli Islands,
frá 1931. Hún hefir verið mjög
athafnasöm í félagsmálum ljós-
mæðra, formaður Ljósmæðra-
félags Islands frá stofnun þess,
árið 1919, og ritstjóri Ljós-
mæðrablaðsins frá upphafi. Ár-
ið 1938 var Þuríður sæmd ridd-
arakrossi Fálkaorðunnar.
I janúar síðastliðnum sendu
stjórnir Ljósmæðrafélags Rvík-
ur og Ljósmæðrafélags Islands
bæjarstjórn Reykjavíkur bréf,
þar sem með skýrum rökum var
sýnd nauðsyn þess að setja á
stofn mæðraheimili í Reykja-
vík, „sakir þeirra átakanlegu
erfiðleika, sem umkomulausar
mæður hafa við að stríða.“
Bærinn stofnaði heimilið í
sumar og 15. júní kom fyrsta
stúlkan þangað. Þuríður Bárð-
ardóttir er húsmóðir heimilis-
ins, og er það í Tjarnargötu 16,
en Árni Pétursson er læknir
þess. Dvelja stúlkurnar á heim-
ilinu 2—4 vikur fyrir fæðingu,
ala síðan börn sín á fæðingar-
deild Landsspítálans og eru svo
á mæðraheimilinu 1—2 mánuði
á eftir. Er hinn mesti myndar-
bragur á heimilinu og þessi ný-
breytni til mikils sóma fyrir alla
þá, sem að henni hafa stuðlað.
Þórunn Björnsdóttir, Þórdís
J. Carlquist og Þuríður Bárðar-
dóttir hafa allar haft verklega
ljósmæðrakennslu á hendi, en
hún var eingöngu falin í því, að
ljósmæðraefnin fengu að ganga
með hinum lögskipuðu ljós-
mæðrum við fæðingu og hjúkr-
un sængurkvenna í Reykjavík,
þangað til fæðingardeild Lands-
spítalans tók til starfa seint á
árinu 1930. Lögskipuðu ljós-
mæðurnar voru fastsettir kenn-
arar í verklegri kennslu frá
1912 og enn fá nemendur fæð-
ingardeildar Landsspítalans að
nokkru að fylgja einni ljósmóð-
ur í bænum, Þórdísi J. Carlquist.
Núverandi stjórn Ljósmæðra-
félags Islands skipa: Formaður
Þuríður Bárðardóttir, gjaldkeri
Sigríður Sigfúsdóttir, ritari Jó-
hanna Friðriksdóttir.
Ljósmæðrafélagi íslands hef-
ir alltaf verið mjög annt um að
bæta menntun ljósmæðra og
ávallt verið frumkvöðull að
lenging kennslu ljósmæðraskól-
ans og aukinni fræðslu ljós-
mæðra á margan hátt.
Uppgjafahermaður 21 árs. Clyde
Brenst er gekk í herinn 18 ára
gamall, en missti vinstri fótlegg-
inn í orustu á Guadalcanal.
Japanskt skip að sökkva. Þessi mynd sýnir japanskt
skip, sem var sökkt af amerískum kafbáti. Þetta
skip var samt aðeins eitt af átta skipum, sem var
sökkt á sama tíma.