Vikan - 04.11.1943, Síða 12
12
VIKAN, nr. 44, 1943,
Hversu vinskapur getur verið mikið betri en
allar aðrar tilfinningar, hugsaði hún; sannur og
innilegur vinskapur á milli manns og konu —
það er betra en allt annað.
Hún strauk mjúklega með hendinni yfir hár
sitt. Hún vissi, að það fór vel, og nú gleymdi
hún því, að það mátti finna grá hár innanum.
Hún vissi líka, að hún var í fallegum og klæöi-
legum fötum. Barbara var aftur farin að hafa
ánægju af þvi, að líta vel út. Eftir að hún nú
einu sinni hafði skilið það, að æskan var liðin,
var það farið að renna upp fyrir henni, að konur
geta verið fríðar á öllum aldri, og hún vissi með
sjálfri sér, að í dag leit hún vel út.
Dyrnar opnuðust skyndilega og Revelstone
kom inn. Barböru fannst, sem hún hefði aldrei
fyrr um ævina fagnaö jafnmikið komu nokk-
urs manns. Hversu .augnaráð hans var hreint og
skært! Hann þekkti þá þungbæru sorg, sem til
er í veruleikanum, eins og hún; þau höfðu bæði
mikið reynt, og borið þrautir hvors annars, og
trúað hvoru öðru fyrir tilfinningum sínum, svo
það var nokkurskonar félagsskapur með þeim —
undarlega sterk samúð.
„Ó, hve það er gaman að sjá þig aftur!“ sagði
Barbara og gekk á móti honum með framréttar
hendur. Augu hennar Ijómuðu, og kinnar henn-
ar voru rjóðar. Hinn síði kjóil hennar féll i mjúk-
um fellingum um fætur hennar — hún hafði fest
rauða rós milli knipplinganna á brjóstinu, stóra
'dökkrauða rós.
„Og það er líka dásamlegt, að sjá þig aftur,
Barbara — það er dásamlegt!" Revelstone lávarð-
ur tók um báðar hendur hennar og horfði í augu
hennar. „Ég hefi hugsað svo mikið um þig,“ hélt
hann áfram, og það var ofurlítill klökkvi í rómn-
um. „Ég hefi þráð svo mikið að frétta, hvernig
liði hér — hvernig allt gengi — og þegar ég
heyrði svo, að þú hefðir rofið trúlofunina við
Howard Burton, og að hann ætlaði að kvænast
Ethnee —.“
„Við skulum nú ekki tala um þetta!“ greip
Barbara framí. „Ég hefi ekki löngun til að koma
með langar útskýringar í dag! En ég vil bara
að þú vitir, að það hefir alltsaman farið á þá
leið, sem ég vonaði að það færi, og þéssi
gifting gleður mig ósegjanlega mikið!“
Það var engum vafa undirorpið, að hún
meinti það, sem hún sagði, það heyrði Revel-
stone lávarður, og honum fannst eins og þung-
um steini væri létt af hjarta sínu. Hann brosti
til Barböru.
,„Jæja, þá er allt saman gott! Það hefir þá
allt verið satt og rétt, sem Ethnee skrifaði mér
— elsku litla Ethnee! Allt mitt líf skal ég vera
henni þakklátur — óumræðilega þakklátur!"
„Fyrir hvað ert þú Ethnee svo þakklátur?"
spurði Barbara með undrunarhreim.
„Hún hefir greitt veginn fyrir mig,“ svaraði
hann. „Hún hafði kjark til að skrifa mér hrein-
skilnislega — til að skrifa mér um alltsaman!
Kæra Barbara, skilur þú ekki, hvað það er, sem
kom mér til þess að snúa aftur heim til Ir-
lands?"
Hann nefndi fornafn hennar mjög rólega og
blátt áfram, og það var einhver hljómur í rödd
hans, sem hún hafði aldrei heyrt fyrr — hljóm-
ur, sem í senn gladdi hana og gerði hana kvíða-
fulla. Barböru fannst nú allt í einu, að sálarró
sin raskaðist, allur hennar friðsæli og rólegi
heimur.
„Þú hefir náttúrlega komið til þess að verða við
brúðkaup Ethnee?"
Hún reyndi að tala rólega og eðlilega, en hjarta
hennar barðist ákaft, og hún gat naumast komið
orðunum upp.
„Nei, ég er kominn af allt annari ástæðu —
af ástæðu, sem er mér sjálfum miklu kærari!"
Hann horfði augnablik alvarlega á hana. „Ó,
elskan mín, hvemig hefir þetta annars verið öll
þessi ár, höfum við ekki séð —• ekki skilið —
hvað hefir hrærzt með okkur sjálfum ? Ég elska
þig, Barbara; ég sem hélt, að ég mundi aldrei
geta elskað framar — ég elska þig, þannig, sem
ég hefi aldrei elskað konu fyrr. Og þú —. Ó,
segðu ekki, að þér þyki ekki vænt um mig! Gefðu
vinskap okkar rétt nafn — kallaðu hann ást!“
Hún gekk frá honum, það kom angistarfullur
svipur á andlit hennar, og roðinn í kinnum henn-
ar breyttist í fölva.
„Ó, nei, nei," stundi hún. „Ekki tala svona við
mig! Þú mátt það ekki, Revelstone lávarður —
ég bið þig um það! Ég vil aðeins eiga þig að
vini — ekkert annað! Ég trúi ekki á ástina,
slíkar tilfinningar hafa svo oft valdið mér von-
brigðum."
Hún titraöi frá hvirfli til ilja. Það var óróleiki
í augnaráði hennar. Gleði sú og friður, sem í sál
hennar hafði ríkt fyrir stundu síðan, var nú snú-
inn upp í örvæntingu, og hún var ráðvillt.
„Ég vil aldrei elska nokkum mann framar,"
sagði hún lágt. „Ég get ekki skilið það. Ég hefi
nú einu sinni tekið það i mig, að vera einsömul
það sem eftir er ævinnar."
„Ó, elskan mín.. — Ástin mín!“ Revelstone
breiddi faðm sinn á móti henni. „Þú mátt ekki
halda, að ég geri þér nokkurn tíma vonbrigði.
Ég er hvorki líkur Pierce eða Howard Burton!
Ég hefi reynt mikið eins og þú sjálf hefir gert,
og ég veit, hvað það er, að vera særður. Við
höfum bæði átt okkar vonbrigði og okkar sorgir;
vonir, sem hafa aðeins reynzt tál, við höfum
bæði beðið skipbrot í lífinu, og við vitum bæði, að
vordagar ævi okkar eru liðnir! En til er nokkuð,
sem heitir síðsumar — hlýtt og bjart síðsumar,
og þú ert ung ennþá, Barbara, bara ef þú vilt
trúa á það sjálf! Barbara — elskan mín----------.“
Rödd hans var þrungin tilfinningu, og hann
þagnaði skyndilega.
Barbara hristi höfuðið.
„Ég hefi aldrei hugsað mér þig nema sem vin,“
sagði hún. „Það er svo erfitt að skilja það, að
þú elskir mig! Hvenær varð þér það ljóst -,og
hvernig?"
Hann roðnaði við.
„Það var Ethnee, sem skrifaði mér —,“.svar-
aði hann. „Hún sagði í sjálfu sér ekkert, en samt
sem áður skildist mér á bréfinu, að þú mundir
gleðjast yfir því, að sjá mig aftur; og Ethnee
lét mig líka skilja það, að hún væri löngu búin að
veita því eftirtekt, að mér þætti vænt um þig, og
þegar ég hafði lokið við að lesa bréfið —- það
var svo einfalt og barnalega hreinskilið — þá —
þá varð mér það skyndilega ljóst, að bamið hafði
rétt fyrir sér, og að ég í raun og veru væri ást-
fanginn af þér — að ég hafði elskað þig í þessi
síðustu niu eða tíu ár.“
„Nú, svo þetta hefir Ethnee gert!“ Barbara
stóð skyndilega upp af legubekknum. Andlit
hennar var náfölt og hin stóru augu hennar
glansandi eins og af sótthita. „Til þess að friða
samvizku sína — til þess að telja sjálfri sér trú
um, að hún hafi eiginlega ekkert brotið af sér
við mig, með þvi að taka Howard frá mér —■
hefir hún reynt að semja um sárabætur fyrir mig
— alveg eins og hinar auðvirðilegu gömlu konur
héma niðri í sveitaþorpinu, sem lifa á því, að
vera milligöngumenn og stofna til hjónabands
fyrir bænduma! En mér finnst, að það hefði mátt
hlífa mér við þeirri smán, að gera mig að verzl-
unarvöru — mér — mér finnst það, Revelstone
Iávarður. En ég verð að segja þér mína skýringu
á þessu máli. Stjúpdóttir mín hefir engan rétt
til þess að vekja tilfinningar þínar á þennan
hátt!“.
„Vertu ekki svona heimskuleg, Barbara! —
svona stórlát og þverúðug! Ég hefi sagt þér,
að ég elski þig, og það er ekki vani minn, að
fara með ósannsögli! Ethnee hefir alveg rétt
fyrir sér.“
„Ethnee hefir hagað sér skammarlega!"
Barbara féll skyndilega i grát. Hún grét i
nokkrar mínútur, en það var eins og gráturinn
létti af hjarta hennar. Hún var þó enn í mikilli
geðshræringu, og Revelstone lávarður skildi hana.
og hann vissi líka, að bezt mundi vera að gefa
henni tóm til að jafna sig eftir þessa geðshrær-
ingu, sem hans óvænta bónorð hafði komið
henni í.
Hann hafði líka verið alltof fljótur á sér. Hann
hefði átt að geta vitað, hversu tilfinninganæm sái
hennar var. Hann varð að játa það, að hann
hafði hagað sér heimskulega. En nú vissi Bar-
bara þó, að hann elskaði hana, og það var í
sjálfu sér mikill ávinningur; hann hafði fengið
tækifæri til þess að uppljúka hjarta sínu fyrir
henni.
„Nú fer ég, Barbara, svo þú getir hugsað um
þetta í ró og næði. — Ég kem svo aftur til Glenns-
kastala snemma í fyrramálið, og ég vona að í
millitíðinni verður þú búin að jafna þig, og þá
takirðu mér vingjamlega! Veiztu það, Barbara,
að ég hefi það á tilfinningunni, að við tvö eigum
heillaríka framtíð fyrir okkur — langan og
hamingjuríkan tíma! Við eigum mjög vel sam-
an í einu og öllu, þú og ég -— og það hefir mikið
að segja í hjónabandinu, er það ekki rétt? Og
þar að auki varst það þú, aðeins þú ein, sem
gafst mér trúna og skilninginn á lífinu — að
ástin geti læknað öll mein!“
MAGGI OG RAGGI.
Raggi: Nú ætti holan að
vera orðin nógu stór!
Raggi: Ekki er maður lengi I\\Oi
að því, sem litið er! Það er
margur ónýtari en ég í land-
vamastarfinu!
Maggi: Nú þykist . Raggi
hafa verið klókur! Að hann
skuli láta sér detta í hug að *' JJJ/i
nokkur trúi því, að þetta sé
tófugreni!
Maggi: Guð hjálpi mér!
))/■' 4
& mjC
Jilj