Menntamál - 01.12.1938, Blaðsíða 40
102
MENNTAMÁL
1. Rannsókn á tíðni orða.
2. Rannsókn á ritvillum barna.
Þær rannsóknir, sem hér ræðir um, ern aðeins einn
þáttur í miklu víðtækari rannsóknum, sem fram þyrftu
að fara í sambandi við móðurmálskennsluna yfirleitt. En
þótt þeim sé aðallega beint að stafsetningarkennslunni,
mundi efalaust mega hafa þeirra önnur not, l. d. við
samningu lesbóka fyrir byrjendur. Þá er einnig líklegt,
að þær gætu orðið góður stuðningur við samningu staf-
setningarorðakvers og málfræði iianda börnum, þar sem
tillit væri tekið til þess, á hvern hátt börnum er eðlilegt
að tileinka sér þau fræði.
Um einstök alriði þessa máls mætti margt segja, en út
í það skal ekki farið að sinni. Gefst e. t. v. tækifæri til þess
síðar.
En að lokum skal ])ess gelið, að byrjað er á islenzkri
talningu svipaðri þeim, sem áður er l>'st, og er henni þeg-
ar komið nokkuð áleiðis, en efni og ástæður ráða því,
hvenær henni verður lokið, því að verkið er seinlegt og
auk þess einungis tómstundavinna. Mun því þó verða hrað-
að eins og kostur er á. Kemur þá í ljós, hvert gagn megi
bafa af slíkum orðalistum.
Ársæll Sigurðsson.
Kveðja.
Eftirfarandi kyeðjuorð flutti varaformaður S. í. B., Aðal-
steinn Sigmundsson, við kveðjuatliöfn i dómkirkjunni 13.
júlí síðastl.
Guðmundur Þ. Guðmundsson skólastjóri á Finnboga-
stöðum var góður félagi og ágætur starfsbróðir í kennara-
stélt íslands. Þess vegna vill kennarastéltin flvtja honum
stuttorða kveðju að Iiinzta skilnaði, nú þegar liðið lík hans