Menntamál - 01.12.1938, Blaðsíða 69
MENNTAMÁL
131
eru góðar og gagnlega liverju barni og hafa þroskandi
álirif á neniendurna. Ætlu nemendur að geta fengið vott-
orð um getu sina í þessuni greinum, t. d. með því að gefin
væru út smekkleg skírteini. Hefir fræðslumálaskrifstofan
þegar látið gera laglegt skírteini um sundpróf barna, sem
mun verða sent til skólanna innan skamms.
Ekki er ósennilegt, að liér sé i byrjun merkur þáttur í
starfi skólanna, sem eigi fvrir sér að eflast og bera góðan
ávöxt.
H. EI.
Leystir af verði.
Þeir kennarar, sem stóðu i blóma lífsins árið 1907,
jjegar bin fyrsta íslenzku fræðslulög gengu í gildi, eru
íiú smátt og smátt að hverfa af verðinum, er þeir hafa
staðið á í í'ulla þrjá áratugi.
Það eru litlar likur til þess, að saga þessara landnema
i riki hins íslenzka barnaskóla, verði nokkurntíma skráð
svo ítarlega sem vert væri, og þó er liún á margan hátt
merkileg. Það er saga um frumbýlingsskap og óteljandi
crfiðleika. Það er saga um mikið erfiði en lítil laun, saga
um stórt og vandasamt hlutverk en oft og tíðum lítinn
skilning alls þorra almennings á þýðingu þess og stund-
um litla samúð. íslenzkir barnakennarar á fvrstu tugum
þessarar aldar hafa ekki baðað í rósum, og flest annað
mun frekar verða hægt að finna þeim til foráttu en það,
að vera eigingjarnir og kröfuharðir i garð þjóðfélagsins.
Islenzkur farkennari, sem vinnur fyrir 1 kr. kaupi á dag,
og ferðast bæ frá bæ ineð bækur sínar og áliöld í 30 ár,
án þess að missa trú á köllun sinni, án þess að svikjast
nokkurn dag af verðinum, er hetja, þótl nafn hans sé
9*