Menntamál - 01.12.1956, Blaðsíða 40
166
MENNTAMÁL
LÁRUS J. RIST:
Hugleiðingar
um leikfimi og íþróttir.
Þegar ég kom inn í her-
bergið mitt og sá slípaðan
glerhlunkinn, bréfapress-
una á borðinu, fann ég, að
ferðalaginu var lokið. Það
hafði lánazt ágætlega. Ég
hafði farið endilanga Aust-
ur-Skaftafellssýslu frá
vestri til austurs, og mér
hafði auðnazt að horfa yfir
Skeiðarársand, líta upp til
Vatnajökuls, saxa föng og
bera upp sátur á Hala í
Suðursveit og raka ljá á
bökkunum hjá Bæ í Lóni,
landnámi Úlfljóts.
Ferðalaginu mátti helzt
líkja við vel heppnaða
veiðiför, því að fleira má veiða en lax og silung í ám og
vötnum og ljón í Afríku. Það má veiða þrótt og þor, hug-
dettur og heillandi myndir, sem geyma má í fylgsnum
hugans og bregða upp á sýningartjaldið, hvenær sem vill,
án þess að þurfa að hafa svo mikið fyrir sem að styðja á
hnapp. Það má veiða lífsgleði!
Áhuga fyrir veiðiskap af þessu tagi fékk ég í Dan-
mörku fyrir röskum 50 árum, fyrst á Askov, þar sem góð