Menntamál - 01.08.1966, Blaðsíða 93
MENNTAMÁL
179
Skýrsla um starfsemi S. í. B. milli
fulltrúaþinga 1964 — 1966
Stjórn.
Stjórn sambandsins skipuðu: Skúli Þorsteinsson, formað-
ur, Ingi Kristinsson, varaformaður, Ársæll Sigurðsson, rit-
ari, Gunnar Guðmundsson, féhirðir, og meðstjórnendur
Svavar Helgason, Þórður Kristjánsson og Páll Guðmunds-
son.
Þing og fundir.
Samkvæmt heimild síðasta fulltrúaþings var ekki haldið
uppeldismálajring vorið 1965 vegna norræna skólamótsins,
en það var haldið í Reykjavík dagana 22. til 24. júlí. Full-
trúar S.I.B. í undirbúningsnefnd mótsins voru: Gunnar
Guðmundsson, Ingi Kristinsson, Páll Guðmundsson, Skúli
Þorsteinsson og Sigurjxir Þorgilsson.
Viðfangsefni mótsins var: Þróunarstefnur í uppeldi og
kennslu á Norðurlöndum. Mót þetta var haldið á vegum
uienntamálaráðuneytisins, sem bar allan kostnað, en kenn-
arasamtökin ásamt borgarstjórn Reykjavíkur tilnefndu full-
Vúa í undirbúningsnefndina. Vann undirbúningsnefndin
uukið starf, en framkvæmdastjóri hennar var ráðinn Stefán
Ólafur Jónsson, námsstjóri.
Alls munu á annað þúsund manns hafa sótt mótið, þar
af 300—400 íslenzkir skólamenn. Þarflaust mun að rekja
erindin, sem flutt voru á mótinu, þar sem útdráttur úr
þeim birtist í Menntamálum.