Menntamál - 01.08.1966, Blaðsíða 105
MENNTAMÁL
191
til stjórnar B.S.R.B. með ósk um, að Kjaranefnd úrskurð-
aði í málinu. Hafði sambandsstjórn fengið kennara úr
félögunum til þess að ræða við Kjararáð um málsmeðferð
og fleira.
Hins vegar hafa stjórnir sumra þessara félaga fallið frá
jrví að vísa málinu til Kjaranefndar, a. m. k. í bili.
Reykjavíkurborg hefur fallizt á að greiða smíðakennurum
í Reykjavík fyrir eftirlit með smíðastofum og verkfærum.
Handavinnukennarar stúlkna fengu greiðslur fyrir heima-
vinnu skólaárið 1963—64, en hafa ekki fengið neinar greiðsl-
ur síðan.
Kaffitími kennara.
í Kjaradómi frá 3. júlí 1963 voru ákvæði um, að kenn-
arar skyldu hafa á hinum daglega vinnutíma einn kaffi-
tíma, 20 mín., þó ekki á laugardögum. Það var öllum ljóst,
að ýmsir annmarkar voru á að framkvæma þessi ákvæði
óbreytt í barnaskólum. Stjórnir L.S.F.K. og S.Í.B. hófu við-
ræður um þetta við íulltrúa menntamálaráðuneytisins,
fræðslumálastjóra og Reykjavíkurborgar. Náðist samkomu-
lag milli þessara aðila um, að kaffitímar verði 15 mínútur
árdegis alla daga vikunnar og jafnlangur kaffitími síðdegis
í þeim skólum, sem starfa a. m. k. 2 klukkustundir eftir kl.
13.00. Til kaffitíma skal verja 10 mínútna frímínútum og
5 mín. af aðliggjandi kennslustund. Þeir, sem gegna vörzlu
eða kennslu í kaffitíma, fá hann greiddan sem i/3 úr
kennslustund með yfirvinnukaupi.
Nokkur dráttur varð á, að fjármálaráðuneytið og samn-
inganefnd ríkisins samþykktu þetta samkomulag, en að lok-
um var það þó samþykkt af þessum aðilum.
Eftir að síðasti Kjaradómur féll, féllst fjármálaráðuneytið
á> að sömu reglur gildi áfram um kaffitíma kennara.
I fyrrgreindum viðræðum um kaffitíma kennara bar
etnnig á góma nokkur kjaraatriði, sem varða kennara og