Menntamál - 01.08.1966, Blaðsíða 66
152
MENNTAMÁL
til kennsluhúsnæðis. Þess verði gætt, að forn hreppa-
mörk verði ekki lengur til að hindra það, að æska lands-
ins fái mannsæmandi húsnæði til námsins.
4. Bæta þarf aðstöðu nemenda til sjálfstæðrar námsvinnu
með því að búa skólana hentugum kennslutækjum, að-
gengilegum handbókum og kennslubókum svo fjöl-
breyttum, að þær séu við hæfi allra nemenda og í
samræmi við þarfir æskufólks hvers tíma. Ótvíræð fram-
för hefur orðið á frágangi og myndskreytingu kennslu-
bóka ríkisútgáfunnar. Hins vegar er ábótavant gerð og
samningu ýmissa námsbóka og þær engan veginn í
samræmi við þroskastig og getu nemendanna, og þyrfti
að fást ráðin bót á því.
Fræðslumálastjórn leiti uppi og athugi hentugar hand-
bækur og geri á hverjum tíma lágmarkskröfu um
tækja- og handbókakost skóla.
5. Gæta þarf þess, að hverjum starfsmanni skóla sé ekki
ætlað meira starf en svo, að hann geti unnið það svo
vel sem þörf krefur.
6. Fræðslumálastjórn gangist fyrir námskeiðum og fræðslu
um nýjungar í uppeldis- og fræðslumálum og sé það
gert að hluta úr starfi kennara að sækja slík námskeið,
enda sé ferða- og dvalarkostnaður aðkomukennara, sem
þau sækja, greiddur úr ríkissjóði. Þingið lýsir ánægju
sinni yfir nýskipan fræðslumálastjórnarinnar á skipun
námsstjóra í einstökum greinum og þeim námskeiðum,
sem hún hefur staðið fyrir, og væntir framhalds á þeim.
7. Ef nemendur á fræðsluskyldualdri þurfa að skipta um
skóla, bendir reynsla nokkurra skóla til þess, að heppi-
legast sé, að sú skipting verði um 12—13 ára aldur,
þ. e. í byrjun gelgjuskeiðs. Benda má á það, að ná-
grannaþjóðir okkar telja sig hafa góða reynslu af því,
að hafa börn og unglinga í sama skóla allt að gagn-
fræðaprófi eða lengur. Gefur slíkt fyrirkomulag aukna
möguleika til að laga námsskrá eftir getu og þörfum