Menntamál - 01.04.1969, Blaðsíða 121
MENNTAMÁL
115
Góðir lundarmenn. Afstaða okkar til kröfunnar urn verðlagsupp-
bætur á laun hlýtur að vera á einn veg, eins og nú er málum háttað.
Ennfremur liljótum við að krefjast endurskoðunar á launaflokkakerfi
opinberra starfsmanna, sem byggist á því starfsmati, sem nú er unnið
að.
Við treystum því að óreyndu, að þar verði vel og drengilega að
unnið af hálfu hins opinbera. Fullur samningsréttur fyrir opinbera
starfsmenn er brýn nauðsyn. I>að sannar reynsla liðins tíma.
Jírcgðist vonir um réttláta lausn i launamálum opinberra starfs-
manna í næstu framtíð, verðum við að endurskoða stöðu okkar og
baráttu fyrir því réttlæti í kjaramálum, sem ríkja verður í menningar-
þjóðfélagi.
Fræðslufundur Kennarafélags Suðurlands
var haldinn að Vík í Mýrdal dagana 15. og 16. marz. Mættir voru á
fundinum rúmlega 20 kennarar al' félagssvæðinu. sem nær yfir Arnes-,
Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslur. Auk kennaranna mættu á fundin-
um Bjarni M. Jónsson. fv. námsstj., Skúli Þorsteinsson, námsstj.,
Kristján J. Gunnarsson, skólastj. og Jónas Pálsson, sálfræðingur.
Þessi fræðsluerindi voru flutt á fundinum:
Um námsbækur og Ríkisútgáfa námsbóka, Kristján J. Gunnarsson.
Um sjónvarp, heimili og skóla, Jónas Pálsson.
Um norræna samvinnu og alþjóðasamtök kennara, Skúli Þorsteins-
son.
Oll voru erindi þessi hin athyglisverðustu og urðu um þau miklar
og fjörugar umræður.
í sambancli við fræðslufundinn liélt kennaraíélagið kvöldvöku fyrir
almenning laugardagskvöldið þann 15. rnarz. Þar sýndi Kristján J.
Gunnarsson, skuggamyndir frá Bandarlkjaferð, Jónas Pálsson, flutti
erindi urn aga og Skúli Þorsteinsson flutti hugleiðingu um móður-
málið og las kvæði séra Sigurðar Einarssonar um orðið. Auðunn
Bragi Sveinsson las stökur eftir föður sinn, Svein frá Elivogum og
Kristján Guðmundsson las þjóðsögur. Milli atriða var almennur
söngur.
Hreppsnefnd Hvammshrepps bauð fundarmönnum lil kaffidrykkju
í hóteli Kaupfélags Skaftfellinga í Vík. ,