Vorið - 01.09.1966, Blaðsíða 40

Vorið - 01.09.1966, Blaðsíða 40
það var ekki góður hlátur, það líktist meira urri. — Eg er hérna, refapabbi, og nú ætla ég að hafa ykkur til kvöldverðar, ef þú getur ekki hindrað það með þessu vagn- hlassi þínu af viti! sagði röddin, en út úr runnanum rétt hjá þeim kom gult og svartröndótt tígrisdýr. Þetta var óhugnanlegt andartak fyrir refapabba, og nú dugði ekki vagnhlass- ið hans af viti. Hann varð orðlaus og gat heldur ekkert gert. Helzt hefði hann viljað flýja, en hann vissi, að það gagn- aði ekki, því að tígrisdýrið mundi ná í hann í tveim stökkum, þótt hann væri fljótur að hlaupa. Þess vegna var hann kyrr, en hann skalf af hræðslu. Vesa- lings refapabbi! Hann ætlaði ekki að trúa sínum eig- in eyrum, þegar hann heyrði allt í einu refamömmu ósköp rólega ávarpa tígris- dýrið: — Frændi! sagði hún. -— En hvað það var heppilegt að við skyldum hitta yður! Það vill svo til, að við hjón- in getum ekki orðið ásátt um svolítið, en þér, frændi góður, sem eruð svo v.it- ur, getið hjálpað okkur! í þessu landi var það talin kurteisi að segja frændi við þann, sem talað var við, og tígrisdýrið var upp með sér yfir að vera álitið viturt. Þess vegna svaraði það með rómi, sem var eins og þegar köttur.inn malar: — Lof mér að heyra, svo skal ég svara — áður en ég ét ykkur! — Jæja, frændi, sagði refamamma. — Við eigum fimm fallega yrðlinga. Við getum ekki verið sammála um, hverjir líkist manninum mínum og hverjir þeirra líkist mér. Ef að þér, sem eruð svo vitur, sjáið þá, getum við und- .ir eins fengið skorið úr því. Viljið þér gera okkur þann mikla heiður? Tígrisdýrið hugsaði með sér: — Ég get étið þennan heimska refapabba og fávitru refamömmu og þar að auki náð í fimm feita yrðlinga. Hann svaraði mjög vingjarnlega: — Vísið mér leið- ina til grenisins og sýnið mér ungana, og ég skal dæma í málinu. — Já, gjarnan, frændi, sagði refa- mamma og lést ekki sjá, hvað hann hugs- aði. Refahjónin gengu á undan, tígris- dýrið læddist á eftir þeim og brátt voru þau komin að greninu. — Refapabbi, hagði hin hugrakka refamamma. — Farðu inn og segðu börnunum, að Tígur frændi sé kominn og langi til að heiðra þau með nærveru sinni. — Flýttu þér!! urraði tígrisdýrið. Það gerði refapabbi sannarlega! Hann skaust niður í göngin og hvarf eins og örskot, en refamamma sat og beið við hlið.ina á tígrisdýrinu. Þau biðu mjög lengi, en ekki bólaði á refapabba eða fimm feitu yrðlingunum. Tígr.isdýrið varð reiðara og reiðara. Hann langaði 1 matinn sinn og varð leiður á að bíða- —■ Hvað varð af manninum þínunt og yrðlingunum, urraði hann. — Afsakaðu, hvað þetta dregst, frændi, svaraði refamamma. — Ég held að ég verð.i að fara og ná í þau. — Segðu þeim að flýta sér, urraði tígrisdýrið. -— Já, frændi, sagði refamamma kurt- eislega og smaug niður í refagöngiu- Eftir andartak var hún horfin og tígr- isdýrið sat eitt eftir. 134 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.