Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.2000, Blaðsíða 9

Bjarmi - 01.12.2000, Blaðsíða 9
I ágúst 1 997 fór ég síðan í meðferð hjá SÁÁ sem gekk mjög vel. Samt gat ég ekki tekist á við fortíðina, ég gat ekki „gert sjálfan mig upp“. Eg skildi ekki þetta æóra máttarhugtak eða „guð eins og við skiljum hann“. Jólin 1997 urðu algjör vendipunktur hjá mér. Jólin eru alltaf við- kvæmur tími. Þau eru fjölskyldutími og ég er mikill fjölskyldumaður. Þessi jól fór ég algjörlega á botninn og ég ákvað að taka mitt eigið líf. Ég gat þetta ekki lengur — ég sá enga lausn. Þá var það að gamall vinur minn spurði mig hvort ég hefði prófaó að fara á hnén. Mér gramdist þetta. Ég vildi bara fá einhverja „patent" pillu og þá yrði allt í lagi. Ég sagði nei og leiðir okkar skildu. En þá um kvöldið — 28. desember 1997 — áóur en ég framkvæmdi það sem ég ætlaði að gera til að taka mitt eigió líf, þá ákvað ég að prófa að fara á hnén. Ég bað þarna, einn heima í svefnherbergi — farið til heimilislæknisins míns og hann setti mig á þunglyndislyf. Á sama tíma horfði ég mikið á Omega og ég fór aftur og aftur með frelsisbænina. Þú hefur ekki verið farinn að sækja samkomur á þessum tíma? — Nei, ég vitnaði samt mikið fýrir vin- um mínum en ég hafói ekki Orðið. Ég vissi ekki hvað felst í því að vera kristinn og hvað er mikill kraftur á bak við það. Ég hafði ekki Orðið til að standa á og huggunina sem í þvf býr. Kannski hafði það líka sitt að segja að ég var ennþá að taka þunglyndislyf á þessum tíma. Nú er ég ekki á móti lyfjum eða læknum, Guð notar þá. Þetta virkaði samt ekki fyrir mig og ég lenti inni í eins konar lyfjahjúp. Ég var aó taka lyf sem SÁÁ leyfa, lyf sem ekki eru vímugefandi, heldur taka botn- ana og toppana af. Staðreyndin er hins vegar sú að ég þarf þá, ég er tilfinninga- þannig að hann talar til manns í gegnum hana. Mér fannst Guó segja mér aó ég ætti að hætta að fara heim aó leggja mig á daginn og vinna í staó þess þessa tvo tfma. Auk þess gat ég orðið bætt við tveimur tímum yfir háannatímann þannig að þetta var líka mjög „praktískt“. Ég komst að því að það var bara lífsleiði sem skapaðist af lyfjunum þvi' þau tóku alla toppa af og ég lifði bara í miðju til- finninganna. Þegar þarna er komið fannst mér Guð vera farinn að verka í lífi mínu dags dag- lega. Eftir að ég fór niður á hnén 1997 keypti ég mér bænabók eftir Sigurbjörn Einarsson, biskup, og ég notaði hana. Ég bað alltaf kvölds og morgna en var kannski ekki eins meðvitað í bæn allan daginn eins og ég er nú. Ef ég er að fara inn í einhverjar erfiðar kringumstæður, eins og t.d. núna, þá bið ég Guð bara að leiða það, en þá verð ég líka að vera sátt- Rætt vió Magnús Stefánsson, fyrrum trommuleikara Utangarðsmanna Og Andi Guðs kom inn í herbergið. Ég bað fyrir þeim sem ég var reióur út í og fyrir sjálfum mér og úthellti öllum sárs- aukanum fyrir Guði. Nú kunni ég ekkert að biðja en þarna sem ég bað fór Guð að sýna mér hvaða grunn mig vantaði í rauninni og hvað mikið var að í fari mínu. Ég man að ég grét eins og barn, bæði vegna þess að það er mjög erfitt að opna sig svona algjörlega, en Ifka vegna þess að það var svo gott að losna við þessa þungu byrði. Vörður, forstöðu- maóur í Fíladelfíu, benti mér síóar á Alfa' námskeiði á það sem stendur í Matt.11,28: „Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld.“ Það er svo dásamlegt hvernig ég hef fengið að upplifa ritning- una í lífi mínu, bæði þegar ég frelsaðist °g eins eftir það, jafnvel áður en ég þekkti hana og hafði lesið hana. Næsta eitt og hálft ár gekk í miklum sveiflum hjá mér tilfinningalega. Bæði var erfitt að takast á við skilnaðinn og það að vera helgarpabbi og eins að takast á V|ð það sem ég kallaði aumingjaskap, sem og öll mistökin í lífi mínu Ég hafði vera sem þarf sitt svigrúm, en ég má ekki fara niður úr öllu valdi og leggjast í þung- lyndi. Nú er Guó í lífi mínu í dag og hann leyfir mér að gleðjast þannig að flæðir yfir barmana, en ég fer aldrei langt niður, Guð grípur mig áður en það gerist. Á þessum tíma horfði ég áfram mikið á Omega og sérstaklega á Joyce Meyer, ég elskaði kennslu hennar því að hún leggur sjálfa sig algjörlega á borðið. Hún segir svo oft frá því sem hún hefur orðið fýrir þannig að það var svo auðvelt að finna sig í kennslu hennar. Þegar hér er komið sögu er komið haustió 1999. Þá var ég farinn að fara heim úrvinnunni á hádegi til að hvíla mig og fór svo aftur í vinnuna um tvö leytið og vann í 2-3 tíma. Ég hafði orðið ekkert þrek. Þá tók ég á- kvörðun og sagði við Guð: Allt í lagi, Guð, ef þetta er þinn vilji með mig þá vil ég gera það lyfjalaust. Ég fór og keypti mér lítið vasaútvarpstæki og svo var ég bara með þaó í eyrunum allan daginn í vinnunni, en ég er iðnaðarmaður, málari. Ég hafði útvarpið alltaf stillt á Lindina og síðan hef ég brosað hringinn! Það segir í Orðinu að Guð búi í lofgjörð sinna barna ur við útkomuna. Ég skil Guð ekki alltaf því að hans hugsanir eru æðri mínum hugsunum. En ég tel að hann þurfi stundum að leyfa mér að reka mig á því ég get svo auðveldlega hrokast upp. Hvenær byrjar þú síðan að sækja sam- komur? — Um haustið í fýrra var ég búinn að vitna mikið fýrirvini mínum og við ákveð- um að fara að skoða okkur um. Við för- um að fara á milli safnaða og sitja sam- komur. Ég segi meóvitaó að „sitja“ sam- komur því við vorum ekkert að taka þátt í þeim heldur hlömmuðum við okkur nið- ur aftarlega og virtum þetta skrítna fólk fýrir okkur. Það endaði síðan með því að hann gekk í Kefas. Ég var reyndar dálítið hissa á því af því að við vorum alveg bún- ir að fýlgjast að og mér fannst Guð sýna mér skýrt að ég ætti ekki að ganga í Kefas. Ég hélt því áfram og fór bæði í Frelsið og hingað. Hér gerast síðan nokkrir atburðir sem ég túlka þannig að Guð vilji fá mig hingað. Ég hafði reyndar komið hingað á samkomu 1998 sem endaói með meira en tveggja tíma sam- 9

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.