Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1957, Blaðsíða 24

Heimilisblaðið - 01.03.1957, Blaðsíða 24
leiðar sinnar og skilja Katherinu eftir hjá þessum mönnum. Hann var sannfærður um, að þetta væri uppgerð hjá henni. Það leyndi sér ekki, að hún var skelfd við manninn, sem sat hægra megin við hana. Thomas lét eins og mennirnir væru hvergi nærri, heldur sneri sér að Katherinu og sagði: ,,Ég ætla að fara aftur að borðinu mínu. Ef til vill gefst okkur síðar tækifæri til þess að talast við“. Hann hneigði sig og hélt aftur að borðinu. Hann veitti því eftirtekt, að hljóðfæraleik- ararnir höfðu lagt frá sér hljóðfæri sín, og allt var grafkyrrt inni í veitingastofunni. Enginn hreyfði sig.. Þetta var óhugnanlegt. Aldrei hafði honum liðið ver en nú. ölglasið, sem hann hafði pantað, var kom- ið, en hann var í of æstu skapi til þess að geta snert það. I þess stað tók hann upp vindlingapakkann. Hann sá Katherinu standa á fætur. And- artak hélt hann, að hún væri að koma til hans, og það hélt maðurinn, sem sat vinstra megin við hana, bersýnilega líka, því að hann stökk á fætur eins og hann vildi aftra henni. Thomas stóð líka ósjálfrátt á fætur, en í stað þess að ganga til hans, stefndi hún á dyrnar að kvennasnyrtingunni og fór þang- að inn. Thomas settist strax aftur, og maðurinn sömuleiðis, en sneri stólnum sínum þannig, að hann gæti haft gætur á dyrunum, sem Katherina hafði horfið inn um. Thomas til mikils léttis tóku hljóðfæra- leikararnir aftur að leika, og kyrrð virtist færast yfir veitingastofuna. óveðrinu virt- ist hafa slotað. Thomas kveikti sér í vindlingi og sá mann nokkurn nálgast borðið, þar sem Katherina hafði setið. Thomas hafði ekki séð neinn gefa honum merki, en þó hlaut hann að hafa fengið einhver merki frá manninum hægra megin, því að hann tók sér stöðu eins og þjónn við hlið hans og beið eftir skipunum. Maðurinn sagði líka eitthvað við hann yfir öxl sér, og þegar sá aðkomni leit til Tomas, var Thomas ekki í neinum vafa um, að það var hans vegna, sem maðurinn var kominn á vettvang. Þetta olli Thomas nokkrum áhyggjum, því að maðurinn var stór og kraftalegur og reglulega glæpamannslegur á svipinn. En það var ekkert hægt að gera. Maðurinn hvarf líka nokkru síðar frá borðinu og settist við borð frammi við dyr. Um leið og hann gekk fram hjá, sá Thomas unga stúlku setja stút á varirnar á sér og líta íbyggin á borðherra sinn. Það leit út fyrir, að allir viðstaddir hefðu auga með dyrunum að kvennasnyrtingunni. Fyrr eða síðar myndi Katherina koma það- an, og þá myndi eitthvað gerast — eitthvað alvarlegt. Allt virtist reiðubúið undir stór- kostlegasta uppnám. —o— Thomas tók að óska þess, að hann væri ekki einsamall. Hann hafði stundað hnefa- leika í nokkur ár og því gæddur all-góðum kröftum, en hann var þess fullviss, að allir gestirnir væru honum andvígir, og væri ástæðan til þess helzt sú, að þeir vildu um- fram allt forðast fjandskap við illilega mann- inn. Thomas hefði sannarlega ekkert haft a móti því að hafa einhvern góðkunningja að baki sér. Eina ósk átti hann enn, en hún var sú, að torgið, sem kaffihúsið stóð við, stæði ekki á enda blindgötu, langrar og dimmrar. Skyndilega og fyrirvaralaust slokknuðu ljósin. Thomas gleymdi þeirri stundu aldrei síðar. Valsinn, sem verið var að leika, dó skyndi- lega út í ósamhljóma væli, og kona heyrðist hrópa upp yfir sig, en af skarkalanum, sem kvað við úr öllum áttum, mátti dæma, að allir höfðu staðið á fætur. Thomas hafði sprottið samstundis á fæt- ur, því að honum hafði dottið í hug, að myrkvunin væri gerð honum til heiðurs. Hann fálmaði í kringum sig eftir veggnum til þess að snúa bakinu að honum, þegar hann fann hönd grípa um úlnlið sér og rödd hvíslaði: ,,Komið“. Þetta var Katherina. Hann skildi ekkh hvernig hún fór að því að sjá í myrkrinu, því að hann var sjálfur alveg blindur, en hún dró hann á eftir sér yfir dansgólfið og bak við skenkiborðið. Allt var nú í uppnámi. Thomas heyrði flösku brotna á gólfinu, og einhver hrasaði og datt. Þá var eins og merki væri gefið, stólum var velt um koU, 68 — HEIMILISBLAÐH)

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.