Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1930, Blaðsíða 102
96
Sjálfstæðismálið.
IÐUNN
samningurinn hlaut að geyma það tvent, sem hann
geymir: viðurkenningar af Dana hálfu og ákvæði um
hið nýja fyrirkomulag sambandsins. Það virðist því sem
orðin séu valin af handahófi til þess að segja eitthvað.
Vér höfum 1918 skuldbundið oss til að vera í sam-
bandinu til 1943, og fer illa á því að reyna að smjúga
undan því að halda það, enda vel þraukandi jafn
stuttan tíma.
Fjórtán ár er langur tími, ef ætlast er til þess, að
menn sjái fram yfir þau af forspeki sinni. Þeim, sem
fylgdu frumvarpinu frá 1907, reyndist það alveg ógjörn-
ingur þá, að sjá fram yfir þau 11 ár, sem liðu til 1918,
því hefðu þeir getað það, hefðu þeir vafalaust flestir
verið á móti frumvarpinu. En nú ætla sumir þeirra að
fara að miða stjórnmálastefnu sína við ástand, sem
liggur 14 ár frammi í tímanum. Skyldi þeim ganga það
betur, og hefur reynslan frá 1907—1918 kent þeim, að
það væri auðveldara? Þeir höfðu í þá daga ýmislegt
sér til afsökunar. Evrópa og heimurinn virtist þá vera
komin inn í þrotlausa pólítíska staðviðra-lotu, og hafi
einhverja grunað, hvað í hönd færi, þá voru það varla
íslenzkir menn, og hvernig það yrði og afleiðingar þess
hafa þeir þá ekki heldur getað hugsað sér. Það var því
harla afsakanlegt, að þeir þá hugsuðu sér, að breytingar
væru ekki líklegar í bili.
Ofriðarárin 4 hafa gerbreytt þessu. A þeim hefur
orðið meira rask á jafnvægi Európu en á öllu tímabili
Napóleons mikla, sem stórstígt þótti, og enn er það
ekki settlað. Fyrir skemstu er setuliðið í Rínarbygðum
fyrst farið að mjaka sér þaðan burtu, og fullfarið verður
það ekki fyrr en á miðju þessu ári. Stærsta ríki Európu,
Rússland, hefur um stjórnarfar steypt óþyrmilegar stömp-