Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1930, Blaðsíða 107
IÐUNN
Sjálfstæðismálið.
101
við alveg óþarft verk. Óþarft af því, að Danir geta ekki
meinað oss að skilja við þá, ef landsmenn vilja. Það er
engu líkara en þjóðin í augum þessarra manna, sem
ætla að fara að grípa fram fyrir hendurnar á framtíð-
inni, sé kölska lík, og að þeir vilji taka að sér hlutverk
Sæmundar fróða og skipa henni að flétta reipi úr sand-
inum, svo að hún hafist ekki annað að á meðan. Og
þeir hafa hreint og beint játað þetta; þeir hafa játað,
að þessi nýja hreyfing, sem þeir eru að hleypa upp, sé
ekki eingöngu gerð vegna sjálfstæðisins, heldur til þess
að stemma stigu fyrir framgangi jafnaðarstefnunnar. Það
er til þess, sem orðið helga — »sjálfstæði« — er nefnt.
Það er enginn vafi á því, að hverjum manni í landinu
er heimilt að halda um jafnaðarstefnuna það, sem hann
vill, og hverjum manni er heimilt að vinna á móti henni.
Það er kunnugra en frá þurfi að segja, að vegir stjórn-
mála og stjórnmálamanna eru allra vega óbeinastir, svo
að ekki séu höfð önnur orð. En það eru takmörk fyrir
því, hvað langt megi ganga í því efni sem öðrum. Og
hér er farið langt út fyrir þau. Eins og nú er skipað
málum í heiminum eru engin mál neinnar þjóðar jafn
viðkvæm og þýðingarmikil fyrir afkomu hennar eins og
utanríkismálin. Það hefur því þótt sjálfsögð skylda, og
er það líka, að halda þeim utan við dægurþras innan-
landserjanna, og þetta hafa Islendingar verið þjóða skel-
eggastir með. En nú ætlar flokkur í landinu að fara
að leiða athyglina frá starfsemi jafnaðarmanna með því
að stjóra þjóðina niður við sjálfstæðismálið í 14 ár, og
telja henni á þeim tíma trú um, að nauðsyn sé að skilja
við Dani 1943, sem þeir þó ekkert vita um, hvort verður;
þeir ráða ekki nauðsyninni; henni ræður rás viðburð-
anna. En hvað gera þessir menn nú, ef þeim tekst að
telja þjóðinni trú um þetta, og þegar að framkvæmd-