Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1928, Page 13
IÐUNN
Flóttinn.
Flesfir þeir, sem far-
ið hafa fullorðnir að
heiman frá Islandi og
dvalið um nokkuð langt
skeið erlendis, munu
hafa tekið eftir því, að
ekki er mjög langt um
liðið, er þeir eru teknir
að lesa það, sem þeim
berst í hendur af blöð-
um og tímaritum að
heiman, á annan veg
en þeir voru áður vanir.
Þeir fá ekki sending-
arnar nægilega ört, til
þess að geta fengið
kappsaman áhuga á
því, sem rætt er hverja
stundina eða vikuna.
Þeir fá blöðin í stór-
um bögglum, og þeir hafa ekki lokið við lesturinn allan,
þegar þeir taka eftir því, að það, sem vakið hefir hinn
mesta storm og umrót í fyrstu blöðum pakkans, er með
öllu útrætt og horfið úr blöðunum, áður en varir. Þetta
eru dægurefni, sem af skiljanlegum ástæðum vekja nokk-
urt umtal, þar sem atburðirnir eru að gerast, en þau
eru ekki vel fallin til þess að koma þeim í mikla geðs-
Ragnar E. Kvaran.