Kirkjuritið - 01.12.1947, Blaðsíða 54
322
Aldarafmæli Prestaskólans:
Nóv. - Des.
Úr því varð þó ekki. Áhugamál hans voru svo mörg, og
þá gat hann aldrei dregið sig í hlé, er honum virtust þau
með einhverjum hætti horfa til eflingar Guðs ríki. Til þess
taldist líka að rétta við brostinn viðarteinung eða láta tvö
strá vaxa þar, sem áður spratt eitt. ,,Guð gefi góðu málefni
sigur“, var kveðja hans til jarðlífsins. Hann leiddi nemend-
ur til þroska og víðsýni. Það kom fyrir, að Prestaskóla-
stofan þröngva víkkaði svo og hækkaði, að við blöstu fjalla-
hlíðar og jöklar Islands, en himinn ljómaði yfir. Hann
vakti skilning þeirra á því, hvert væri aðal lúterskrar trú-
ar: Samvizkufrelsi kristins manns fyrir augliti Jesú Krists.
Þeim, sem dáðu hann mest, kom í hug um hann lýsingin
á fyrsta íslenzka prestaskólakennaranum: Manna vænst-
ur. ... Manna snjallastur. . . . Manna beztur.
VI.
Síðasti forstöðumaður Prestaskólans var séra Jón Helga-
son. Hann hóf fyrst kennslu þar veturinn 1892 - ’3 í veik-
indaforföllum föður síns, varð fastur kennari við skólann
1894 og forstöðumaður 1908. Þegar Háskóli Islands var
settur á stofn, varð hann prófessor við guðfræðideild hans
og fyrsti deildarforseti. Átti hann mikinn þátt í samning
háskólalaganna. Hann var rektor Háskólans 1914 - ’15 og
gegndi prófessorsstörfum fram til ársloka 1916, unz hann
gerðist biskup. Hann var frábær afkastamaður, eins og rit
hans mörg og stór sýna bezt og sanna, lagði staka rækt við
kennslu sína og var kennari af lífi og sál líkt og faðir hans.
Menntun hans í guðfræði varð svo alhliða, að hann gat
kennt allar greinir hennar. 1 fyrstu fylgdi hann rétttrúnað-
arstefnu Kaupmannahafnarháskóla, er hann hafði alizt upp
við. En við nánari kynni af sögulegum vísindarannsóknum
og gagnrýni fremstu guðfræðinga Norðurálfunnar skildist
honum, að alfrjáls rannsókn og sannleiksleit ætti að ríkja
hvarvetna í guðfræðinni við leiðsögn Jesú Krists, sem vsei’1
sannleikurinn sjálfur. Þetta var í innsta eðli sínu „nýja guð'
fræðin“, sem hann boðaði lærisveinum sínum og þjóð og