Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1950, Side 16

Kirkjuritið - 01.01.1950, Side 16
Föðurvernd. RæSa eftir dr. C. J. Bleeker háskólákennara. Texti: Drottinn er minn hirðir. Mig mun ekkert bresta. Merking þessara orða verður ekki misskilin. Skáldið játar örugga trú sína á forsjón Guðs. Glaður, hrifinn. Forsjón Guðs leiðir mennina og verndar þá. Ást hans og óendanleg speki lætur þá stefna að settu marki. Orðin eru í samræmi við kjarna kristindómsins: Trúna á það, að Guð ríki yfir heiminum og stýri hverjum ein- staklingi, er hann hefir skapað, um margs konar leiðir honum til sáluhjálpar, stundum í gleði, stundum í sorg. En getum við tekið undir þessi orð af öllu hjarta, veitt þeim viðtöku sem höfuðsannindum, er vér reisum á líf vort? Mér fyrir mitt leyti virðist mörgum veitast nú á dögum erfitt að treysta forsjón Guðs, nú er svo miklar hörmungar hafa orðið. Menn efast um það, að til sé kær- leiksríkur Guð, er annist mannkynið eins og faðir börn sín. Ég hitti einu sinni prest, sem komst harla einkennilega að orði um þessi efni. Hann hafði keypt sér bifreið fyrir skemmstu. Þegar ég heimsótti hann og hann ók mér um fallegu sveitina sína, sagði hann við mig í léttum tón, bæði í gamni og alvöru: „Síðan ég eignaðist bifreið, trúi ég örugglega á forsjónina. Mér verður svo margt á við aksturinn og liggur svo oft við slysi, að það er kraftaverk, að ég skuli enn vera á lífi. Það verður ekki skýrt á ann- an hátt en þann, að forsjón Guðs vaki yfir bifreiðinni minni.“ Óneitanlega er þetta dálítið einkennileg leið til trúar á

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.