Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1950, Page 17

Kirkjuritið - 01.01.1950, Page 17
FÖÐURVERND 15 einhverja dýrlegustu hugsjón kristindómsins í daglegu lífi, ekki sízt fyrir prest. En ég ætla engu að síður að biðja yður að líta alvar- lega á þessi orð. I þeim felst sannleiksneisti. Vér skulum líta á þau eins og nokkurs konar líkingu. Er það svo erf- itt að sjá, að einstaklingurinn og jafnvel mannkynið allt lifir með sama hætti og þessi prestur: Ekur bifreið sinni ungæðislega sér til gamans og skemmtunar á fleygiferð eftir vegum veraldar Guðs, án nokkurs ákveðins tak- marks, lætur bara löngun sína ráða og skortir skilning gersamlega á öllum þeim þjáningum, er hann kann að valda öðrum með gáleysi sínu, og á hættunum, sem ógna þeim. Ég man kafla ævi minnar, er ég var í miklum nauðum og vissi ekki, hvaða stefnu skyldi taka. Á þeim dögum ferðaðist ég eitt sinn í bifreið um nokkurn hluta landsins míns, sem ég hafði aldrei áður séð. Allt í einu greip sú hugsun mig heljartökum, að líf mitt og margra annarra væri eins og akstur um ókunnugt land og að ókunnu marki. ökumaður var traustur það sinn. En vissulega stýr- ir stundum sá maður vagni lífsins, er skortir alla ábyrgð- artilfinningu. Árum saman hefir það hvílt á mér eins og mara, að nútímakynslóðin æki ævivagninum með þeim hætti, að stórslys myndi af hljótast. Og slysið er orðið, heimsstyrj- öld, ægilegri en nokkur hugur fær rúmað, hrun, rústir. En þó þurfum vér ekki að örvænta. Vér berjumst fyrir betra lífi. Fyrir réttlæti og friði, hugsjónum lýðræðis, frelsi kristinnar kirkju og samvizkufrelsi. Vér erum sann- færðir um, að fórnirnar, sem vér höfum fært, verði ekki til einskis né ávaxtalausar. Vér finnum, að það er satt, sem Biblían kennir: Forsjón Guðs gætir mannanna og mannkynsins. Hann vill láta oss hvílast á grænum grund- um og leiðir oss að vötnum, þar sem vér megum næðis njóta. Ég vitna aftur til þessara einkennilegu orða, sem prest-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.