Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1950, Page 19

Kirkjuritið - 01.01.1950, Page 19
FÖÐURVERND 17 °g náð hans óþrjótandi. Fyrir því skal kristinn maður lofa hann og lifa fagnandi dag frá degi í trausti á föðurfor- sjón hans. Nýja testamentið bætir við annarri mynd, þeirri, sem brugðið var upp frá altarinu. Jesús nefnir sjálfan sig góða hirðinn, er sauðirnir fylgja af frjálsum vilja. Jesús Kristur er oss opinberun um kærleika Guðs. Hann hefir réttinn til að kalla sig góða hirðinn. Því að hann lét líf sitt í söl- Urnar til hjálpræðis sjúkum og syndugum. Ást hans eru engin takmörk sett. Allt starf hans, prédikun hans, þján- mgar á krossi og dauði hans átti að leiða mennina á sannan veg lífsins upp að föðurhjarta Guðs. Þess vegna hefir hann valdið til að stjórna oss. Honum er skylt að hlýða. Hann er leiðtoginn, sem aldrei bregzt. Hann leið- ir oss inn á grænar grundir og að vötnum, þar sem vér megum næðis njóta. Einu sinni enn ætla ég að nefna líkingu prestsins. Mað- urinn er vera gædd sjálfræði. Honum þykir gaman að uka í bifreið sinni. Beisk reynsla kennir oss, hvernig það hefir tekizt. Væri ekki hollara að fá þeim stjómina, sem betur, — bezt kann —, Jesú Kristi, eða með orðum Ritn- ingarinnar: Góða hirðinum. Kristinn er sá, sem Kristi fylg- ir í lífi og dauða. Sælir eru þeir, sem honum fylgja. Grænir hagarnir og straumlygn vötnin eru þeim at- hvarf dag frá degi. 2

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.