Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1950, Page 23

Kirkjuritið - 01.01.1950, Page 23
NÝ KIRKJA í MÖÐRUDAL 21 handa. Ég gróf fyrir henni haustið 1946 og púkkaði grunn- mn aleinn; snerti enginn á því annar, og gróf ég þó víða ^iér í öxl og hafði púkkið allt tvöfallt og lamdi saman með Oárnum og sleggju, svo það raskast ekki. Og næstu ár, 1947—8, kom ég henni undir þak og kláraði að steypa hana vorið 1948 og fægja hana innan, gólf og veggi. Þar hl ég fékk fagmann þann bezta, sem völ var á á Akur- eyri, þann sem húðaði Akureyrarkirkju, Ásgeir Austfjörð, °g hefi von um að fá hann til að húða kirkjuna héma utan. Ég á eftir að setja upp loftið ennþá og mála hana utan og innan. Ég hefi mest unnið að henni einn með dreng, sem ég hafði, nema hvað sóknarmenn hér flestir steyptu með mér veggina. Kirkjan er lítil, innanmál 8V2 X7 álnir, en verður kirkju- *e§> og falleg, vona ég. Það er loft fremst í henni yfir dyrum nálægt 2 metra breitt, og fram af þvi eru stórar dyr fram í miðhæðina á turninum, með sömu hæð, svo Það rúmast talsvert margir þar uppi. Svo er annað loft 1 turninum ofar, sem er að mestu ofan við þakið á kirkj- unni og sést því ekki úr þvi inn í hana. En útsýni er þar fagurt mjög. Ýmsir góðir menn hafa gefið kirkjunni gjafir. Vernharður Þorsteinsson menntaskólakennari á Akur- eyri hefir gefið allar hurðir og að auk 200 krónur, alls um 1200 krónur. Og þessir hafa gefið til orgelkaupa: Ólafur B. Bjömsson kaupmaður, Akranesi ......... 150 kr. Óskar Jónsson útgerðarmaður, Hafnarfirði........ 600 — Einar B. Bjömsson bóndi, Eyvindarst. i Vopnaf. . 500 — Brynhildur Stefánsdóttir Ijósmóðir, Merki, Jökuldal 100 — Margrét Sigfúsdóttir kennari, Fljótsdalsskólahéraði 100 — Unnur Thoroddsen, Reykjavík..................... 100 — Óóra og Margrét Halldórsdætur, Gunnlaugssonar læknis ........................................ 50 — Valdimar Snævarr skólastjóri .................... 10 — öllu þessu fólki kann ég beztu þakkir. Góðvild þess og

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.