Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1950, Page 33

Kirkjuritið - 01.01.1950, Page 33
Síðasti Bœgisárprestur. Síra Theódór Jónsson past. emer, Dáinn 5., jarðsunginn 18. okt. 1949. Árið 1949 má vera minnis- stætt íslenzkri prestastétt, svo stórhöggur hefir dauðinn verið í garð hennar. Af ekki f jölmenn- ari stétt en prestastéttin nú er orðin, er það mikið afhroð, að með andláti og útför síra Theó- dórs Jónssonar er hann hinn áttundi prestvígði maður, sem til grafar er borinn á þessu ári, þó að vísu hafi aðeins tveir þeirra verið starfandi. íslenzka kirkjan syrgir því um þessi ára- mót átta af sínum góðu sonum, sem samtals hafa unnið á akri hennar í 330 ár, eða að meðaltali rúmlega 41 ár hver. En með síra Theódóri Jónssyni er kvaddur sá þeirra, sem lengst hefir starfað sem þjónandi prestur, eða einu ári betur en hálfa öld, og alltaf á sama staðnum. Enda var hann löngu búinn að taka því ástfóstri við stað og söfnuð, að frá Bægisá vildi hann ekki lifandi hverfa. Þann 18. október síðastl. var síðasti Bægisárprestur- inn til moldar lagður. „Kynslóðir koma, kynslóðir fara, allar sömu ævigöng". Venjulega er það þó svo, að þó að

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.