Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1950, Side 36

Kirkjuritið - 01.01.1950, Side 36
34 KIRKJURITIÐ nema í minningunni. Söfnuðir hins forna Bægisárpresta- kails hafa nú með andláti síra Theódórs Jónssonar kvatt að fullu hálfrar aldar sáðmann og andlegan leiðtoga. Bægisárstaður drúpir í söknuði yfir þessum afdrifaríku þáttaskiptum í sögu sinni. Síðasti presturinn er látinn. Kyn- slóðir Bægisárpresta eru famar — og koma ekki aftur. Ein greinin af menningar- og trúarmeiði þjóðarinnar er af höggvin. — Theódór Jónsson var fæddur að Auðkúlu í Húnaþingi 16. maí 1866. Voru foreldrar hans Jón prófastur Þórðar- son og Sigríður Eiríksdóttir, sýslumanns Sverresen. Stúd- ent frá Latínuskólanum í Reykjavík 6. júlí 1886 og guð- fræðikandídat frá Prestaskólanum 24. ágúst 1888. Stund- aði barnakennslu næstu 2 árin, unz honum var veitt Bæg- isárprestakall 12. júní 1890 og vígður þangað 29. júní s. á. Þar var hann óslitið prestur þangað til hann fékk lausn frá embætti 1. júní 1941. Samkvæmt lögum bar honum að segja af sér 1936, en eftir einróma beiðni safnaða sinna fékk hann leyfi til að sitja áfram næstu árin. Síðan 1941 hefir hann setið á Bægisá og þar andaðist hann 5. okt. s.l. Síra Theódór kvæntist á Akureyri 28. apríl 1898 Jó- hönnu Valgerði Gimnarsdóttur prests Gunnarssonar að Svalbarði og Ljósavatni, sem lifir mann sinn. Þau eign- uðust 3 dætur: Sigríði, kennslukonu, Valgerði (látin) og Kristjönu, stúdent. Útför síra Theódórs fór fram að Bægisá 18. okt. að við- stöddu fjölmenni. 'Þar fluttu ræður síra Sigurður Stef- ánsson á Möðruvöllum, sira Eiríkur Brynjólfsson á Út- skálum (systursonur síra Theódórs) og undirritaður. Prestar bám kistuna úr kirkju til grafar. Bar útförin fagr- an vott um vinsældir þær og virðingu, sem hinn látni sóknarprestur átti í hugum safnaðamia, er hann hafði þjónað svo lengi. Síra Theódórs Jónssonar verður alltaf minnzt með einlægum hlýhug sökum mannkosta sinna, alúðar og gáfna. Blessuð sé minning hans. Friðrik J. Rafnar.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.