Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1950, Síða 38

Kirkjuritið - 01.01.1950, Síða 38
36 klRKJURITIÍ) ensdóttir frá Ljósavatni, móðursystir hinna alkunnu Ljósa- vatnssystkina, sem öll voru afbragðsvel skáldmælt, enda voru þær María móðir þeirra og Sigríður afkomendur séra Stefáns skálds Ólafssonar í Vallanesi. Jórunn móðir Ara á Skútustöðum var dóttir Þorleifs Skaftasonar í Múla. Vildu sumir óvildarmenn Skúla fógeta, stjúpbróður hennar, segja, að hún væri með bami hans, er hún gekk að eiga Ólaf. Þó hygg ég, að þeir, sem átt hafa kost betri skilríkja, telji, að fundum þeirra Skúla og Jórunnar hafi ekki getað borið saman á þeim tíma, sem til þurfti; virðist mér líka af frásögn gamalla manna, að Ari muni að mörgu leyti hafa líkzt Ólafi. Báðir voru þeir ráðríkir menn og skapstórir, framgjarnir og vel að sér um marga hluti. Báðir voru þeir taldir fjölkunnugir, eins og títt var þá um þá menn, sem báru af að mennt- un og mannviti. Þuríður, móðir Árna prófasts, var dóttir Helga bónda á Skútustöðum Ásmundssonar bónda í Baldursheimi Helgasonar, og síðustu konu hans Helgu Sigmundsdóttur frá Vindbelg Árnasonar frá Hofstöðum Illugasonar. Voru feðgar þessir skapstórir menn en gáfaðir og Sigmundur talinn kraftaskáld. Helga Sigmundsdóttir þótti lík föður sínum um margt, skapstór, örlynd og hispurslaus, en bráð- gáfuð. Þuríður dóttir hennar var hæglát kona í allri fram- komu, slétt og prúð, djúpvitur og langminnug. I æsku minni var hún talin hér bezta heimild fornra sagna og ættvísi, en því miður fór mestur sá fróðleikur í gröf með henni. Þuríður var bókhneigð kona og las jafnt danskar bækur og íslenzkar, sem þá var fátítt hér um konur á hennar aldri. Jón maður hennar var sagður skynsamur dugnaðarmaður og vel látinn. Þegar síra Árni var 10 ára gamall, fluttu foreldrar hans að Svínadal í Kelduhverfi — mun hafa þótt þröngbýlt á Litluströnd, þegar ómegð þeirra óx ár frá ári. Geymzt hefir saga ein í Mývatnssveit á þá leið, að þegar Árni litli var á fjórða ári, hafi hann hlaupið á móti föður sín-

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.