Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1950, Page 50

Kirkjuritið - 01.01.1950, Page 50
48 KIRKJURITIÐ um sjóði. Hvernig gæti hann sagt það, ef allir menn væru gjörspilltir, alls ekkert gott til í þeim? Og fjölda af orðum Jesú má nefna, sem benda alveg ljóst í sömu átt, t. d. í Fjallræðunni. Ef mönnum er gjörsamlega ómögu- legt að bæta ráð sitt, verður hún fjarstæða. Hann brýnir fyrir mönnum að vanda breytni sína: Ljós yðar lýsi mönnunum, til þess að þeir sjái góðverk yðar og vegsami föður yðar, sem er í himnunum. Biðjið, og yður mun gefast. Leitið, og þér munuð finna. Knýið á, og fyrir yður mun upp lokið verða. Leitið fyrst ríkis Guðs og réttlætis, og þá mun allt þetta veitast yður að auki. Verið fullkomnir, eins og yðar himneski faðir er fullkominn. 1 dæmisög- unni um týnda soninn sýnir hann, með hverjum hætti afturhvarf mannsins verður. Týndi sonurinn kemur til sjálfs sín í fjarlægu landi langt burt frá föðurhúsunum, þar sem hann situr við draf svínanna. Þar minnist hann kærleika föður síns og hann ákveður að fara heim, og hann gjörir það. Með öðrum orðum: Það liggur braut frá manninum til Guðs, ekki aðeins frá Guði til mannsins. Að sönnu er það fyrst og fremst kærleiki föðurins, sem knýr soninn til afturhvarfs, og faðirinn kom á móti hon- um, féll um háls honum og kyssti hann, en sonurinn gekk alla þessa löngu leið frá drafi svinanna heim til föðurhús- anna. Hann varð sjálfur að vilja það og hann gjörði það, sem í hans valdi stóð. Hann var einn þeirra, sem erfiði og þunga eru hlaðnir, og hlýddi kallinu að koma heim. Ekki tjáir heldur að styðja þessa kenningu um gjör- spillingu með frásögn Fyrstu Mósebókar um syndafallið. Því að hvorttveggja er, að ekkert orð í sögunni lýtur að gjörspillingu mannkynsins, og svo ber hún vitni um and- legt þroskastig, sem liggur langt að baki. Eða hvaða heil- vita manni skyldi nú til hugar koma, að líkamsdauðinn ætti sér ekki stað, ef Adam og Eva hefðu ekki óhlýðnazt Guði í fyrndinni? Eða, að það sé bölvun fyrir manninn að þurfa að neyta síns brauðs í sveita síns andlits? Þrosk- inn og blessunin, sem af vinnunni leiðir, eru augljósari

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.