Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1950, Page 52

Kirkjuritið - 01.01.1950, Page 52
50 KIRKJURITIÐ nánustu ástvinir þínir, jafnvel barnið, sem þú leiðir við hönd þér, og ekki máttu treysta því, að þér einum verði þyrmt. Þú ert ekki betri en aðrir. Já, fyrir mannkyninu í heild, að örfáum undanteknum, stefnir út í óendanlegar þjáningar. Væri þá ekki miklu betra, að það hefði aldrei orðið til? Eða væri þá ekki bezta hjálpræðið fyrir þessa jörð atómsprengja, sem ylli því, að ekki fæddust fleiri kynslóðir? Væri ekki æskilegt að losna sem fyrst við þetta mannlíf, sem stefndi út í svartamyrkur og vitleysu? Menn hafa reynt að rökstyðja útskúfunarkenninguna orðum Ritningarinnar og talið hana vera biblíulegan krist- indóm. En það er mikill misskilningur, að allt, sem stendur í Biblíunni, sé kristindómur. Meiri hluti hennar er gyðing- dómur, og gegn sumu af þeim gyðingdómi rís Kristur önd- verður. Hann segir, að þetta hafi verið kent, en: Ég segi yður. Síðan ber hann fram gagnstæða kenningu. Þarf í því sambandi ekki annað en að benda á Fjallræðuna. Gyðingar trúðu, að til væri logandi brennisteinsdíki, sem sjmdarar myndu lenda í og glatast um aldur. Og vafalaust hafa ýmsir kristnir Gyðingar haldið þeirri skoðun. Fyrir því má einnig sjá hana koma fram í Nýja testamentinu á stöku stað. En í orðum Krists sjálfs er enga útskúfun- arkenningu að finna. Menn hafa að sönnu talið sig koma auga á hana þar. En það stafar annars vegar af misskiln- ingi á orðum hans, þar sem hann lýsir hinni miklu ábyrgð lífsins og að vegur sjálfselsku og syndar liggi í áttina til dauðans, og hins vegar af því, að orð frumkristninnar hafa verið lögð Kristi í munn á einstaka stað í Nýja testamentinu. Og bera orðin sjálf eins og þau hljóða þvi glöggvast vitni. Þetta kann að þykja djörf ályktun, en er í raun og vex’u eina rétta skýringin á fáeinum orðum, sem Jesú eru eignuð. Eða hver fær t. d. skilið það, að Jesús segi dæmisögur sínar til þess að hylja fyrir mönn- um sannleikann, til þess að sjáandi skuli þeir sjá og þó eigi skynja, og heyrandi skuli þeir heyra, og þó eigi skilja, svo að þeir snúi sér eigi og þeim verði fyrirgefið?

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.