Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1950, Síða 63

Kirkjuritið - 01.01.1950, Síða 63
HEIMSÖKN TIL HEIMATRÚBOÐSINS 61 með öðru móti. Ég hefi alltaf talið mig í röðum hinna frjáls- lyndari í kirkjunni á íslandi og það geri ég enn. — Hér hafði ég verið á fundi með þeim, sem höfðu tekið sér stöðu í þeirri fylkingu, sem af mörgum er talin hin íhaldssamari í dönsku kirkjunni, en mér hafði fundizt sem ég væri kominn til sannra bræðra. Og hér hafði ég heyrt kvatt til hljóðs fyrir þá sömu einingarhugsjón kirkjunnar, sem frjálslyndari menn á íslandi hafa barizt fyrir árum saman, að því er stundum hefir virzt gegn sannfæringu og andstöðu hinna íhaldssamari. Orðið „heimatrúboð" hefir undarlegan hljóm í eyrum ís- lendinga. Kannske hefði orðið það ekki lengur, ef Kristilegt vikublað í dómum sínum um andstæðingana á trúmálasviðinu fetaði þó ekki væri nema í fótspor þess mannsins innan heima- trúboðsins danska, er þó þykir einna minnst fyrir málamiðl- un gefinn, Georgs Bartholdy. Hann sagði í viðtali, sem Kristi- legt dagblað átti við hann í tilefni af sextugsafmæli hans nú nýlega, um Grundtvigsstefnuna, sem löngum hefir verið talin höfuðandstæðingur heimatrúboðsins, að einnig hún hefði unnið dönsku þjóðinni mikið gagn. Guðmundur Sveinsson. VÍGSLA LAUGARNESKIRKJU. Laugameskirkja var vígð með mikilli viðhöfn sunnudaginn 18. desember s.l. að viðstöddu f jölmenni. Biskupinn dr. Sigur- geir Sigurðsson flutti vígsluræðu og vígði kirkjuna, en sóknar- presturinn séra Garðar Svavarsson prédikaði. Að lokinni guðs- þjónustu sat fjöldi gesta boð hjá prestshjónunum, og var veitt af mikilli rausn. Kirkjan er fagurt Guðs hús og ber vitni um þrautseigju og fórnarlund safnaðarmanna. Leiðrétting. í grein minni „Ferð um Norður-Múlaprófastsdæmi" hefir orðið sú villa, að hinn aldraði meðhjálpari, sem hafði gegnt starfinu í 40 ár, var sagður hafa starfað í kirkjunni á Kirkju- bæ í Hróarstungu, en það var á Hjaltastað. Þetta eru lesend- urnir — og með hjálpararnir — beðnir að afsaka. Ámi Ámason.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.