Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1950, Side 65

Kirkjuritið - 01.01.1950, Side 65
MINNINGAR ÚR PRESTASKÓLA 63 ár mitt í Prestaskólanum komu aðeins 5 í yngri deild, og eru þeir nú allir látnir. Stúdentalífið var nú að vísu ekki fjölskrúðugt. Samkomur voru þó við og við haldnar á Hótel Alexandra, þar sem nú er Hafnarstræti 16. Hótelstjóri var danskur maður að nafni Jespersen. Á samkomum þessum voru flutt erindi og umræð- ur á eftir. Einnig var mikið sungið, og lék Steingrímur John- sen söngkennari á slaghörpu af mikilli leikni. Var hann einn- ig ágætur söngmaður. Hann var móðurbróðir Árna Thorsteins- sonar tónskálds. Formaður stúdentafélagsins í minni tíð var Klemens Jónsson, þá nýorðinn lögfræðingur frá Hafnarháskóla, en síðar landritari og ráðherra. Kennarar við Prestaskólann í minni tíð voru: Helgi Hálf- danarson, lektor, séra Þórhallur Bjarnarson og séra Eiríkur Briem, er aðallega kenndi forspjailsvísindi. Séra Helgi lektor kenndi af lífi og sál og hreif lærisveina sína með andagipt sinni og kristilegum áhuga, eins og hinir fögru sálmar hans bera vitni. Séra Þórhallur var ungur og nýkominn að skólan- um, vel lærður í guðfræði og lipur kennari. Hann var hið mesta glæsimenni og hinn höfðinglegasti. Hefði sómt sér vel í hvaða tignarstöðu sem var, og hefði vel mátt heimfæra til hans ummæli Haralds konungs um Gissur biskup. Séra Þór- hallur hafði einnig mikinn áhuga á þjóðmálum, sérstaklega landbúnaðarmálum; gerðist um langt skeið alþingismaður og lét þar mikið til sín taka, eins og kunnugt er. Kynni okkar urðu síðar nánari, þar sem hann var þingmaður Borgfirðinga, og studdi ég hann jafnan eftir mætti. Um séra Eirík var hið sama að segja, að hann lét mikið til sín taka í opinberum málum, þar sem hann sat lengi á Al- þingi, og var einnig lengi annar gæzlustjóri Landsbankans. En þótt séra Þórhallur og séra Eiríkur hefðu þessi aukastörf á hendi, var síður en svo, að þeir vanræktu kennslustörfin. Síra Eiríkur var hár og höfðinglegur maður. Báðir voru þeir vitrir menn, göfuglyndir og góðgjarnir og nutu því mikils álits. Þannig máttu allir þessir kennarar teljast ágætismenn. Margt fleira mætti enn segja um nefnda menn, en til þess er ekki tími í þetta sinn. Um námsgreinarnar er það að segja, að mér fannst ofmikið hlaðið á stúdentana á aðeins tveim vetrum. En að vísu má

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.