Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1952, Page 15

Kirkjuritið - 01.12.1952, Page 15
T | i 1 ^óíauaLa L amanná. X 1 i * Það hefir verið venja hin síðari ár að hafa hér í Kirkju- ritinu stutta jólavöku fyrir bömin. Jólin hafa oft verið nefnd hátíð barnanna, enda er þá serstaklega gott tækifæri að rifja upp jólaboðskapinn og benda bömunum á líf og dæmi Frelsarans. Eg vona, að fullorðna fólkið hafi líka ánægju af því að taka þátt í þessari jólavöku með börnunum, lesi fyrir þau °g syngi með þeim, ef þau eru svo lítil, að þau geti ekki lesið sjálf. Nú skulum við byrja jólavökuna með því að syngja sélminn. 1 dag er glatt í döprum hjörtum, því Drottins Ijóma jól, 1 niðamyrkmm nætursvörtum upp náðar rennur sól. Er vetrar geisar stormur stríður, þá stendur hjá oss friðarengill blíður, og þegar Ijósið dagsins dvín, oss Drottins birta kringum skín. Oss öllum mikinn fögnuð flytur sá friðarengill skær. Sá Guð, er hæst á himni situr, er hér á jörð oss nær. Sá Guð, sem ræður himni háum, hann hvílir nú í dýrastalli lágum, sá Guð, er öll á himinhnoss, varð hold á jörð og býr með oss.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.