Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1952, Side 24

Kirkjuritið - 01.12.1952, Side 24
230 KIRKJURITIÐ rósabekkur til skrauts. Hvelfingin er í reitum, með litum friðarbogans. Á prédikunarstól eru, að fornum sið, mál- aðir guðspjallamennirnir og enn fremur Páll postuli á Aresarhæð. Er á öllu snilldarhandbragð, og á Haukur miklar þakkir skyldar fyrir verkið. Þetta kirkjuhús, sem nú hefir hlotið þessar miklu um- bætur, var reist árið 1924. Kirkjan næsta á undan brann með bænum haustið 1921. Varð engu af munum hennar bjargað, nema altarisklæði ásamt refli á altarisbrún, er gert hefir maddama Elinborg Pétursdóttir, kona séra Sig- urðar Arnórssonar prests á Mælifelli. Segir sagan, að alt- arisklæðið sé áheit á kirkjuna, sem md. Elinborg hafi gert, er hún eitt sinn óttaðist um líf manns síns úti i aftakaveðri. Hefir Mælifellskirkja bæði fyrr og síðar reynzt góð til áheita. Þetta altarisklæði, sem nú er 95 ára gamalt, er með hinu fegursta handbragði og hinn mesti dýrgripur. Er það Ólafi Sveinssyni, fyrrum bónda á Starrastöðum, að þakka, að það ennþá prýðir kirkjuna og er til augnayndis þeim, er þangað koma. Snöfurmannlega vatt hann sér inn í hið brennandi hús og hreif það úr gini eldsins, eftir að aðrir höfðu jafnvel orðið frá að hverfa. Eins og flest annað innan stokks, brann altaristaflan með gömlu kirkjunni, og hefir hennar síðan verið vant í aldarfjórðung. En nú er það skarð ekki opið lengur. Dr. theol. Magnús Jónsson prófessor hefir gefið kirkjunni altaristöflu, er hann sjálfur hefir málað, forkunnarfagurt listaverk, sena mikinn tíma og alúð hlýtur að hafa þurft til að skapa- „Mótívið“ er Fjallræðan. Málverkið þekur allan kórstafn niður að altari. Annað málverk, sem að sínu leyti er ekki síðra, hefir dr. Magnús einnig gefið kirkjunni. Táknar það ummyndun Krists. Er því valinn staður yfir dyrum, gegnt altaristöflunni. Bera þessar gjafir dr. Magnúsi fagurt vitm um ræktarsemi hans og hug til æskustöðva sinna. Vil ég, fyrir hönd safnaðarins og kirkjunnar, þakka

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.