Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1952, Page 49

Kirkjuritið - 01.12.1952, Page 49
255 STEFÁN JÓNSSON, AUÐKÚLU rétta fram hönd til sátta, þótt í odda hefði skorizt. Var hann því jafnan vel metinn og vinsæll fundarmaður. Hon- um var líka einkar lagið að halda uppi samræðum við gesti sína og á mannamótum. # I trúarboðun sinni var séra Stefán jafnan frjálslyndur og mildur, og mun óhætt að fullyrða, að hann hafi að talsverðu leyti mótazt af trúfræði Magnúsar Eiríkssonar, föðurbróður síns. Séra Stefán mun hafa orðið einna fyrst- ur íslenzkra presta til að hafna eilífri útskúfun í boðskap sínum. Hann minnti á það, að ekki væri nóg að segja „herra, herra“, ef hugarfar og breytni fylgdi ekki með. Kærleikur og trúmennska væru hinar æðstu mannlegar dyggðir. Andi kristindómsins væri jafnan æðri en bók- stafurinn. — Margt sóknarbarna séra Stefáns gerði sér ljóst, að hann batt sig ekki eins fast við bókstafinn og sumar prestar aðrir, sem það hafði haft kynni af, en það var síður en svo, að honum væri fundið það til foráttu. Hann var einróma álitinn góður prestur, og var þar jöfn- um höndum átt við mannkosti hans og embætti. Hann skildi manna bezt hagi sóknarbarna sinna og vissi, hvers mætti með sanngirni af þeim krefjast, t. d. með kirkju- sókn í strjálbýli, vegleysum og annriki. En einmitt þetta heilaga umburðarlyndi og kristilega mildi gerði marga hinna fornu sveitapresta að sjálfkjörnum aðalsmönnum uieðal sóknarbarnanna og lagði þeim í munn „það mál, sem endurhljómar í fólksins sál“, svo lánuð séu orð Ein- ars Benediktssonar. Sýnishom af ræðum séra Stefáns má sjá í Hugvekjum til húslestra á misseramótum, á jólanótt og gamlárskvöld, sem hann samdi og lét prenta á Akureyri 1885 (8vo 42 hls.). í bókarformi er einnig Draumur Jóns Jóhannesscnv- ar> er séra Stefán skrásetti (Akureyri, 1882). Allmargar blaðagreinar em eftir hann í Kirkjublaðinu og á víð og

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.