Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1952, Page 52

Kirkjuritið - 01.12.1952, Page 52
VALLAKIRKJA NIUTIU ARA — Vígður Mukkutuminn — Finnið ekki árin liðnu anda inni f þessum Drottins helgidómi? Hér er friður, einhver unaðsljómi, eins og bros frá fyrsta bernskudegi. Gullna vor, þér gleyma kann eg eigi. Gengnu stundir! Heyrið, hvað eg segi! Þið hafið allar farið burt í flýti, en flestar skilið eftir spor í sandi. Ljúfa minning, lítil perla' á bandi, læðstu fram við altarisins varma. Þið berið yfir lífsins leiða’ og harma og látið þorna af tárum vota hvarma. Hér var það, sem fann eg fyrsta sinni fögnuð ríkan inn í hjartað streyma. Eg sat hjá mömmu, í leiðslu’ eg lét mig dreyma, og leit minn föður prestinn skrúða klæða. Hrifið mundi hjartað þá til hæða, þótt hafi mér ei skilizt prestsins ræða. En hvað um það? — Eg kunni skil á öðru: kertaljósum, söng og orgeltónum. Furðulegt var fyrir mínum sjónum, að féllu' ei stjörnur hér á gólfið niður úr blárri hvelfing. — Blíður helgi-friður bærði hjartað. — Gladdi söngsins kliður. Árin liðu, aldur færðist yfir, inn við grátur kraup eg fjórtán ára. Ábyrg er ei æskan sinna tára;

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.