Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1952, Page 63

Kirkjuritið - 01.12.1952, Page 63
i ! i ÓKUNNA GUÐSPJALLIÐ J i i Svo er nefnt brot af sefpappírshandriti, sem kom upp úr sandinum á Egiptalandi sumarið 1934. Það er aðeins trjú blöð og þau orðin slitur, svo að erfitt er að lesa sumstaðar. Þó hefir það tekizt að mestu, og virðist það rétt og eðlilegt, að Kirkjuritið geymi þessi orð, enda hafa ritstjóranum borizt tilmæli í þá átt. Þau eru í fjórum köflum og sem hér segir: I. 1. Og Jesús sagði við lögvitringana: Refsið sérhverjum rneingerðamanni og yfirtroðslumanni, en ekki mér .... Og hann sneri sér að leiðtogum lýðsins og mælti þessi prð: Rannsakið ritningarnar, sem þér hyggið, að þér haf- lífið í; það eru þær, sem vitna um mig. 3. Ætlið ekki, ég sé kominn til þess að ákæra yður fyrir föður mín- Urn; sá er til, sem ákærir yður, Móse, sem þér hafið úyggt von yðar á. 4. Og þegar þeir sögðu: Vér vitum Vel. að Guð hefir talað við Móse, en um þig vitum vér ekki, hvaðan þú ert, þá svaraði Jesús og sagði við þá: Nú er vantrú yðar ákærð .... Samanber: Jóh. 5, 39, 45; 9, 29. n. 5. Þeir réðu mannfjöldanum til þess að bera steinana ^^ttian og grýta hann. 6. Og leiðtogarnir leituðust við að leggja hendur á hann, svo að þeir gætu tekið hann °g afhent mannfjöldanum, og þeir gátu ekki tekið hann, ^ því að stundin var enn ekki komin, að hann yrði svik- 1Uu- 7. En hann sjálfur, drottinn, gekk út mitt á meðal

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.