Fríkirkjan - 01.01.1899, Blaðsíða 5

Fríkirkjan - 01.01.1899, Blaðsíða 5
MANABARRIT TIL STUÐNINGS FEJÁLSRI KIRKJU OG FRJÁLSLYNDUM KRISTINDÓMI „þér munuð þekkja sannlclkann, og sannlelkurinn mun gjðra yður frjálsa.11—• Kri stur. 1899. JANÚAR. 1. BLAÐ. Upphafsljóð. Guðs alfrjálsa orð, hans eilífi sannleikur breiðist um storð, hinn frelsandi sannleikur, frelsarans mál, sem fjötrana leysir af hjarta og sál. Að kirkjan í eðli og anda sé frjáls, er upphaf vors máls. Öll veraldar völd og vegsemdar ljóminn hjá þessari öld er kirkjunni snara og fjötur um fót, svo fái’ hún ei heiminum staðið í mót. Að leysa þann fjötur með frelsarans náð sem fyrst, er vort ráð. Vor frelsari fór svo frá oss, að ei var hann leiddur í kór; en kórónu þétta af þyrnum hann bar, og þó hann í sannleika guðs sonur var. En kirkjan er vafin í vegsemd og skraut á veraldar braut. Sá skrúði er skarn, sem skemmir og veiklar þig, guðsríkis barn; þér betri er lausnarans háðung í heim, en heiður og vegsemd með ambáttum þeim, sem veraldar drottnanna skríða við skör með skarlat á spjör.

x

Fríkirkjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.