Fríkirkjan - 01.01.1899, Blaðsíða 9

Fríkirkjan - 01.01.1899, Blaðsíða 9
5 öllu fyrirkomulagi kirkjunnar, álít eg hreint lífsskilyrði fyrir trúarlífi einstaklings og safnaðar. Eg her svo gott traust til hinnar íslenzku prestastéttar, til íslenzkra menntanranna af öðrum stéttum, og ekki sízt til íslenzkrar alþýðu, að blað þetta, sem eg byrja í Jesú nafni og í trausti til hans máttugu aðstoðar, fái getið sér vini meðal allra stétta, eins fyrir því þótt það við rannsókn guðs orðs kunni að komast að annari niðurstöðu í sumurn greinum, enn hingað tii liefur viðgengist, og hljóti þarafleiðandi að ganga á móti kenningu eða fyrirkomulagi kirkjunnar á landi voru að einhverju leyti. Samkvæmt þvi, sem hér hefur verið tekið fram, verður þá stefna blaðsins þetta tvennt: « frjáls kirkja og frjáls rannsókn. Eg vona að þeir séu rnargir meðal þjóðar vorrar, er séu mér samdóma um þessi efni, og að drottinn uppveki sem flesta af þeim til að sýna það í verkinu með því að gjörast styrktar- menn þessa blaðs. Að svo mæltu óskar „Fríkirkjan" guðs náðar og friðar öllum trúuðum í Jesú Kristi. GrundYÖllurinn. —0 — „Enginn getur annan grundvöll lagt en þann, sem lagður er, sem er Jesús Kristur!“ 1. Kor. 3, 11. Hann er hinn eini, eilífi og óbifanlegi grundvöllur fyrir hjálpræði hvers þess, er trúir á liann. Sé trú þín byggð á þessum grundvelli, það er að segja, sértu í lifandi, persónuiegu sambandi við Jesum, þannig að hann sé þinn dýrmætasti ástvinur, að þú treystir honum, að þú leitir í öllu athvarfs hjá honum, að þig langi til hans og langi til að verða líkur honum, þá er trú þín í eðli sínu hin sáluhjálplega kristna trú, þó þú kunnir að vera einn af smæl- ingjunum, sem ekki rista eins djúpt eins og þeh', sem fróðari

x

Fríkirkjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.