Fríkirkjan - 01.01.1899, Blaðsíða 19

Fríkirkjan - 01.01.1899, Blaðsíða 19
15 var sá, að fríkirkja á íslandi, eins og nú væri ástatt hér, yrði bygging svífandi i iausu lofti, því að hér vantaði grund- völlinn undir slíka fríkirkju." Gegn þessu var það tekið fram af einum af formælendum fríkirkjuhugmyndarinnar, að fríkirkjan ætti auðvitað að byggj- ast á hinum sama grundvelii sem þjóðkirkjan væri byggð á. „Séra J. H. spurði, á hverjum grundvelli ætti að byggja frí- kirkju? Á hvaða grundvelli stendur þá þjóðkirkjan? Auðvit- að á Kristi. Á sama grundvehi ætlum vér að byggja fríkirkju, enda verður ekki annar grundvöllur lagður" (sbr. sýnódus- skýrslu ísafoldar 17. júlí 1897). En þetta er ekki fullkomlega rétt mælt; því að hin eina hugsunarrétta afleiðing af því, ef ekki er hægt að byggja frí- kirkju á íslandi nema í lausu lofti fyrir sakir skorts á lifandi kristindómi í landinu, hlýtur að vera sú, að annaðhvort sé þá þjóðkirkjan líka svífandi í lausu lofti, eða hún hvíli á grundvelli, sem fríkirkja verði ekki byggð á. -— Þessi ummæli dócentsins eru þá í rauninni hið sama sem að iýsa yflr því, að þjóðkirkjan á íslandi sé ekki býggð á Jesú Kristi sem grundvelli, hún er byggð á einhverju öðru heldur enn þessum kletti aldanna (rock of ages). Út af hinu áðurgreinda svari fríkirkjuformælandans tók dócentinn aptur til máls og „skýrði nákvæmar, hvað hann hefði meint með því, að oss vantaði grundvöll undir fríkirkj- una; hann kvaðst auðvitað ekki hugsa sér annan grundvöil undir kirkjuna enn Jesúm Krist; en þá að eins væri Kristur grundvöllur safnaðarins, að hann hefði tekið sér bústað í hjörtunum, en oss vantaði einmitt hjarta-kristindóm og með honum skilyrðin fyrir ávaxtarsömu fríkirkjulífl“. — En allt ber að sama brunni. Úr því Jesús Kristur getur því að eins verið grundvöllur safnaðarins, að hann hafi tekið sér bústað í hjörtunum, en oss vantar einmitt hjartakristindóm, þá er eptir eigin orðum þessa „hjartnanna rannsakara" auðsætt, að hans kæra þjóðkirkja er ekki byggð á hinum eina rétta grundvelii, þeirn eina grundvelli, sem guðs orð segir að kristinn söfnuður verði byggður á. Guðs orð segir skýlaust: „Enginn getur annan grundvöll lagt enn þann, sem lagður er, sem er Jesús Kristur.“ Þess

x

Fríkirkjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.