Sjómannadagsblaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Qupperneq 70

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Qupperneq 70
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 68 það sama átti við um vinnumennina - húsbóndinn hirti aflahlutinn. Hins vegar getur það hafa vegið upp á móti rýrum fjárhagslegum ávinningi að konur sem getið höfðu sér gott orð sem sjósóknarar áttu betra með að velja úr vistum. Enn voru við sjósókn fyrri tíðar ákvæði um happadrætti: Þannig áttu menn sjálfir ýmsar óvenjulegri fisktegundir sem þeir drógu. Ér það sagt um Þuríði formann að hún hafi séð fyrir gamalli móður sinni með happadráttum sínum, svo þarna gat verið um verulega hlutarbót að ræða. Eftir allt saman voru sjókon- urnar því á betri kjörum en aðrar kon- ur, þrátt fyrir vistaákvæðin. Sjósóknin hefur gefið konum færi á að verða sýnilegir einstaklingar sem orð fór af í þjóðfélaginu, en það veitt- ist annars ekki nema húsfreyjum á hinum bestu búum og stöku afburða hannyrðakonum." Skúturnar koma til sögu með ný vinnubrögð - og viðhorf „Þegar kemur að útgerð stærri skipa hef ég ekki getað fundið að konur hafi verið hásetar á skipum biskupsstól- anna og þegar konungsskipin koma til Vestfjarða virðast konur ekki hafa fengið þar skiprúm. Engar heimildir hef ég heldur fundið sem benda til að konur hafi verið skráðar á skúturnar eftir að skútuöld hefst. Oljósar spurnir hef ég samt af að það hafi borið við, en sannanir um það hef ég ekki. Með skútunum koma til sögunnar ný vinnubrögð og að mörgu leyti ný viðhorf til sjómennskunnar líka. Þótt skipin væru í sjálfu sér lítil, þá hafa þau verið nógu stór til þess að bilið milli háseta og yfirmanna hefur orðið meira en það var nokkru sinni áður í íslenskri sjósókn. Vald skipstjórnar- manna verður mjög mikið. Aður hafa það ekki þótt góðir formenn sem ekki voru í nánu sambandi við skipshöfn- ina, en á skútunum hefur þótt minni ástæða til þess. Það sama virðist uppi á teningnum þegar vélbátarnir koma, en fyrsti stærri vélbáturinn, þ.e. dekkbátur sem var beinlínis keyptur til þess að róa til fiskjar, var bátur sem Jón Sturlaugs- son gerði út frá Stokkseyri um 1910. Konum virðist ekki hafa verið hleypt út á þessa gömlu vélbáta fremur en skúturnar. Nú er um skipt frá þeirri skipshöfn sem útvegsbóndinn hélt með til skips og ég fæ ekki betur séð en að helsti áhrifavaldurinn sé hið aukna aflamagn. Hér hef ég til dæmis fyrir mér frá- sögn Snjáfríðar Jónsdóttur (f. 1901), dóttur Jóns Sturlaugssonar, en hún sagði að bátarnir hefðu getað tví- og þríróið og komið með þorsk að landi sem varla var á eins manns færi að lyfta upp á búkkann þar sem hann var hausaður. En eigi að síður var það hún og vinnukonur föður hennar sem gerðu að aflanum í fjörunni og bjuggu hann til verkunar, en til þess hefur auðvitað þurft mikinn mannafla. Þarna var komin á sú verkaskipting sem eftir það hefur verið lífseig - að karlar stundi veiðarnar en konur verk- unina. En ekki má gleyma að þrátt fyrir tilkomu stærri skipa þá hélst það við að konur voru um borð í bátum þar sem heimræði var áfram stundað. Það hefur verið í öllum landshlutum, ekki síst á Austfjörðum. Stundum reri fjöl- skylda, þótt löngum væri það regla að feðgar reru ekki saman á skipi, hvað þá að bóndi reri ásamt öllum sonum sínum: Færist skipið var heimilið án fyrirvinnu. Svo ég víki nánar að þessu þá segir maður einn frá því í Arnesingabók er hann fór sína fýrstu sjóferð og reri hann með föður mínum, Magnúsi Jónssyni á Hjalla. Það var vegna þess að faðir hans vildi ekki hafa hann um borð í skipinu með sér. Jón afi minn, sem ég hef minnst á og kallaður var „gamli Jón“ til aðgreiningar frá syni sínum (Jónar Jónssynir eru mann fram af manni í minni ætt) hafði sama hátt á: Hann vildi ekki að þeir yngri Jón og Magnús faðir minn reru til fiskjar með sér.“ Án kvennanna hefði ekki verið hægt að halda úti svo stórum flota „Það er þegar síldveiðar hefjast í stærri stíl að konur taka á ný að sækja á um að komast í skiprúm og komast nokkuð greiðlega að. Fjöldi frásagna er til um konur sem gerðust síldar- kokkar og þá oft á fjarlægum miðum, eins og þegar skip úr öllum landshlut- um söfnuðust saman til veiða fyrir Norðurlandi. Einu sinni sagði Þor- steinn Gíslason, fyrrum fiskimála- stjóri, við mig að hefðu konur ekki komið til liðs við sjómannastéttina á síldveiðiárunum miklu eftir 1950 hefði ekki tekist að halda úti svo stór- um flota sem raun varð á.“ Konur sem öfluðu sér menntunar á vettvangi sjónmennskunnar „Þegar konur eru þarna loks komnar í sjósóknina að nýju fara sumar af þeim að afla sér menntunar í sjómennsku. Þetta eru konur sem frá unga aldri voru ákveðnar í að leggja sjómennsku fyrir sig sem atvinnu og langar mig fyrst að nefna konu sem frá ungum aldri hafði ætlað sér að verða skip- stjóri. Henni tókst samt ekki að kom- ast inn í Stýrimannaskólann og venti hún þá sínu kvæði í kross og fór í Loftskeytaskólann. Loftskeytamanns- starfið varð svo hennar lífsstarf, en þessi kona var Hjördís Sævar (f.1932). í fótspor hennar fetuðu þó nokkuð margar konur og fóru í Loft- skeytaskólann og hygg ég að þær hafi yfirleitt staðið sig vel í starfi og unað því ágætlega. Persónulega er ég kunn- ug konu, Hrönn Hjaltadóttir að nafni (f.1941), sem lengi var á Akureyrar- togurunum. Hún útvíkkaði starf sitt á ýmsan hátt með því að miðla menn- ingunni til áhafnarinnar. Hún sá um að endurnýja bókasafnsbækur um borð, miðlaði fréttum og tónlist og hélt hvað lengst kvenna út í þessu starfi. Síðar breyttist tæknin, ekki var lengur þörf á sérstökum loftaskeytamönnum um borð og þar með var saga loftskeyta- kvenna á fiskiskipum á enda. Þá hafa nokkrar konur aflað sér fullra skipstjórnarréttinda. Ein kona, Sigrún Elín Svavarsdóttir (f.1956), hefur aflað sér réttinda á varðskip og ágætir vélstjórar hafa verið útskrifað- ir. En þar sem erfitt hefur orðið um að fá störf hafa þær snúið sér að kennslu í sjómannafræðum eða öðru sem teng- ist sjósókn og útgerð. Þannig hefur kona ættuð frá Patreksfirði, Áróra Jó- hannssdóttir (f.1958), lært útgerðar- fræði og snúið sér að verslun með fisk og sjávarafurðir aðrar.“ Komust ekki á frystitogarana „Þegar frystitogararnir fara að koma
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.