Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Síða 81

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1994, Síða 81
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 79 Hannes Þ. Hafstein fyrrv. forstjóri SVFÍ „Mr. Aðalbjörg“ bjargar 198 sjóliðum 19 íslenskir sjómenn farast og 129 erlendum sjómönnum bjargað hér við land og 9 íslenskum sjómönnum við Skotland á einum og sama sólarhringnum * Ilesendabréfi til Morgunblaðs- ins þann 18. janúar sl. minnir Gunnar Magnússon bókavörð- ur í Þorlákshöfn á það er danska herskipið Gjötheborg rak upp á förur á Hraunskeiði árið 1718 og 170 manns var bjargað. Gunnar bendir réttilega á frásögn Árna Óla af þessum voveiflega atburði, en þar fer ritsnillingurinn á kostum eins og hans var von og vísa. Þar er þess jafnframt getið „að skipbrots- menn hafi líklega verið 156 sem héldu héðan sumarið eftir.“ Hinir, nær 20 manns, höfðu fallið úr hor og vesöld, en 18. öldin var svo sann- arlega bæði landi og þjóð erfíð í öllu tilliti. Svo bætir bókavörðurinn við: „...en þar til ég rekst á eitthvað ann- að mun ég telja að hvorki fyrr né síðar hafi fleiri skipbrotsmönnum verið bjargað í einu hér við land.“ Með öllu er óþarft að hverfa alla leið aftur til fyrri hluta 18. aldarinnar í leit að sambærilegri „fjöldabjörgun“ úr sjávarháska. Sá atburður átti sér stað á fjörum Viðeyjar nótt eina í október 1944. Og í öðru bréfi til Morgunblaðsins 22. janúar sl. greinir Olafur Elín- mundarson, Stóragerði 7, Reykjavík, frá því er M/S Goðafoss strandaði hinn 30. nóvember 1916 og „yfir 50 manns var bjargað við Straumnes", eins og yfirskriftin hljóðaði. Hér mun áreiðanlega vera um fjölmennari hóp skipbrotsmanna að ræða, þar sem far- þegar voru 42 í þessari ferð skipsins og áhöfn yfir 20 manns. í birtingu stranddaginn, þegar veður dúraði, fór 1. stýrimaður ásamt fjórum hásetum og einum farþeganna, þaulvönum sjó- manni, á öðrum skipsbátnum að Látr- um í Aðalvík, til þess að sækja hjálp. Er á daginn leið versnaði veðrið og Myndin er tekin á Sjómannadaginn 1971 þegarfrú Gróa Pétursdóttir formaður Slysa- varnardeildar kvemta í Reykjavík var fyrsta og eina konan sem sœmd hefur verið gull- merki Sjómannadagsins. Með henni er greinarhöfundur, Hannes Þ. Hafstein stýrimaður róðrarsveitar B.b. Gísla J. Johnsen sem sigraði í kappróðrinum og hlaut lárviðarsveig dagsins. þegar ekkert bólaði á björgunarmönn- björgunar biðu. Hafði skipsbáturinn unum setti ótta og kvíða að þeim sem ekki náð inn að Látrum? Er ekki að
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.