Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Page 30

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Page 30
Hjörleifi yfir til okkar og spurðu hvort það væri rétt að ég væri þarna um borð? Félagar mínir kváðu svo vera og voru þeir þá beðnir að gefa út sérstaka tilkynningu þegar ég kæmi með þeim næst. Þá ætluðu þeir að taka sér frí, því ég væri slík bölvuð óveðurskráka! Síðar var ég á Kyndli, strandferða- skipunum og stýrimaður á Jökul- fellinu, sem sigldi til Bandaríkjanna. Þarna fékk ég að nýju seltu í hárið og blik í augun, en fyrst og fremst vissi ég nú betur hvað um var að ræða þegar að kjarasamningviðræðum kom. Það er hverjum manni nauðsynlegt sem starfar íyrir verkalýðshreyfinguna að gleyma ekki uppruna sínum, og þekkja kjör sinna manna til hlítar. En þó var það viðtalið við þennan unga mann sem ég gat um og kom og ræddi hressilega við mig á skrifstofunni að ég tók fram gamla sjópokann að nýju.“ Breytingar á högum farmanna „Hvað kaupskipaflotann snertir hefur óskapleg breyting átt sér stað frá 1972. Eimskip tók upp þá stefnu að hafa skipin færri en stærri og þróunin varð lík hjá fleiri skipafélögum og á þessum árum eru margar kaupskipaútgerðir búnar að koma og fara. Menn voru margir að reyna nýjar leiðir og ekki alltaf með góðum árangri né afleiðingum. Þróunin hefur verið með því móti að ekkert stéttarfélag far- manna hefur ráðið við hana. Þar á meðal má nefna það er skipafélögin fóru að taka erlend skip á leigu og manna þau erlendum sjómönnum. Að öðrum félögum ólöstuðum held ég að Sjómannafélag Reykjavíkur hafi reynt að standa allra félaga fastast í ístaðinu gegn þessu. Má þar nefna það er slíkt leiguskip kom til Hafnarfjarðar og Sjómannafélagsmenn komu á vettvang og hugðust gera þeim ómögulegt að binda skipið við brygg- ju. Dreif að tugi manna hvarvetna að til þess að taka þátt í þessu með okkur. Þarna held ég að allur almenningur hafi fyrst áttað sig til fulls á hvað um var að vera og við fengum almennings- álitið með okkur. Er að kjörum farmanna kemur höfum við lengi litið talsvert til hafnarverka- manna og gert sambærilegar kröfur og þeir, þótt við að vísu höfum alltaf viljað fá fram launakjör þar sem mat væri lagt á fjarveruna að heiman og einangrunina sem fylgir starfi sjó- mannsins. Þetta var að vísu eitt sinn gert þegar gerðadómur var látinn skera úr um kjör farmanna — en þegar að efndunum kom treystu dómarar sér ekki til að meta þessa tvo fyrrnefndu þætti. Annars hafa stjórnvöld allt of oft gripið til gerðadóms eða laga- setningar varðandi kjör farmanna og á það við um kjör fiskimanna einnig. Annars er það ásamt öðru um kjör far- manna að segja að þeir njóta nú sam- bærilegra trygginga og fiskimenn. I mikilli kjarasamningalotu 1977 náðum við kaupi þeirra upp um 48%, en verðbólgan var svo fljót að éta þessa miklu kjarabót upp að fyrr en varði stóðu menn í sömu sporum. I þessum samningum fengust líka fram verulegar starfsaldurshækkanir, þannig að farmaður sem hafði siglt í tíu ár var nú með 21 % betra kaup en háseti á byrjunarlaunum. Nú er svo komið að menn fá starfsaldurs- hækkanir fyrr en þarna var samið um. Og ekki má gleyma hve aðbúnaður farmanna er nú langtum betri á nýju skipunum, enda þarf svo að vera því sjómaðurinn er fangi síns vinnustaðar. Ég er líka ánægður með að hafa átt þátt í því að sú venja var aflögð með lögum á árunum 1975-77 að yfir- menn og undirmenn skyldu hafa hvorir sinn borðsal og setustofu. Ég hafði veitt því athygli hve þessar vistarverur háseta voru óvistlegri og að auki hafði tíðarandinn breyst þannig að öll samskipti manna um borð voru orðin frjálslegri. Sé skipstjóri maður til þess að hafa töglin og hagldirnar um borð í sínu skipi, þá minnkar hann á engan hátt við það að sitja til borðs með hásetum sínum.“— „Ég hef nú drepið á ýmislegt sem mér er minnisstætt frá formannstíð minni. A síðasta aðalfundi tók við embættinu af mér Jónas Garðarsson, en ég settist í sæti ritara. Vonast ég til að eiga jafn gott samstarf við félaga mína og alla tíð áður og veit að þetta félag á sér langa framtíð því jafnan eru nóg úrlausnarefni. Á þessum tímamótum óska ég Sjómannafélagi Reykjavíkur og öllum félagsmönnum þess heilla og árangursríkrar baráttu fyrir velferð sjó- mannastéttarinar. 30 SJÓMANNADAGSBLAÐIP
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.