Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Síða 97

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Síða 97
^vintýrari sem nú er uppi. Þeir segja að hann hafi verið vanur að láta í haf a selfangaranum uppi við Alaska- strönd þegar þokan var svo dimm að algóður Guð, já, Hann einn, var þess ^egnugur að greina næsta mann. ^obinson - “Svipa Guðs„. Sá er ^aðurinn. Hann er með mér í þessu bOanódæmi. Besta tækifæri sem á hans ^Jörur hefur rekið um dagana.“ Hann l;>ut niður að eyra mér. „Mannætan? Ja> þeir voru vanir að kalla hann það ^)'rir mörgum, mörgum árum. Manstu s°guna? Þeir urðu skipreika á vestan- verðri Stewart-eyju; alveg rétt; sjö k°ntust í land og svo er að heyra sem þeim hafi ekki komið sem best saman. Urnir menn eru alltaf sífrandi og gera Ser rellu út af öllu - hafa eltki rænu á að tywgast við það sem þó er völ á - líta elrki á málin eins og þau blasa við - e*ns og þau blasa við, vinur minn! Og U1 hvers ætli það leiði nema ófara og vandræða? Vísast að þ eir fái högg á ^uusinn; og eiga það meira að segja skilið. Þess háttar fuglar koma helst að §agni dauðir. Sagt er að skipsbátur af skipi hennar hátignar Wolferine hafi kundið hann kn þar sem hann lá á ^jánum í þaranum, kviknakinn eins °g daginn sem hann fæddist og söng- andi eitthvert sálmalag; snjó ýrði úr °rti. Hann beið þar til báturinn var Uru árarlengd frá landi en spratt þá LlPP og tók á rás. Þeir eltu hann fram aftur um fjörugrjótið í heilan r ukkutíma - eða þar til einn af mat- r°sunum kastaði að honum steini sem af u . bendingu hæfði hann á bak við Vrað svo hann féll í rot. Einsamall? ltanlega. En það er með þessa sögu e'Us og hina um selfangarana; Guð ^eit bve mikið er satt og hve mikið °satt. Þeir á bátnum könnuðu a^stæður ekki náið. Þeir vöfðu hann IUu í stórfrakka og báru hann burt í Suarhasti, því tekið var að dimma og 'eðurútlit slæmt. Á fimm mínútna testi gall við skot frá skipinu til merkis um þeir skyldu hraða sér um borð. Að þrem vikum liðnum var hann orðinn brattari en nokkru sinni. Hann lét allt uppnámið sem varð þegar í land kom ekkert á sig fá. Hann bara steinhélt sér saman og lofaði fólki að skvaldra að vild. Nógu slæmt var að hafa misst skip sitt og allar eigur, þótt hann leggði ekki eyru við öllum ónefnunum sem á honum dundu. Þetta er maður að mínu skapi.“ Hann hóf upp handlegginn sem bendingu til einhvers neðar í götunni. „Hann á dá- litla peninga í handraðanum svo ég varð að lofa honum að vera með mér í þessu. Ég varð! Það hefði verið synd- samlegt að fleygja slíkum happafundi frá sér og sjálfur hafði ég rúið mig inn að skyrtunni. Mér dauðgramdist að verða að gera það. En ég gat litið á málin eins þau blöstu við, og fyrst ég varð að fá mér einhvern að félaga, þá gat ég - held ég - engan kosið mér betri en Robinson. Ég skildi hann eftir við morgunverðarborðið á hótelinu meðan ég skrapp í réttinn að hlusta á dómsuppkvaðninguna, því ég hef fengið þá hugmynd... Hah! Góðan daginn, Robinson skipstjóri... þetta er vinur minn, Robinson skipstjóri." Grindhoraður öldungur, sem riðaði af elli, í hvítum hitabeltisklæðnaði og með grænbryddan sólhatt á höfði kom nú að heilsa upp á okkur eftir að hafa stjáklað veiklulegum skrefum yfir götuna. Nú stóð hann hér og lukti báðum lúkum um hnúðinn á regnhlíf sem hann studdist við. Rytjulegt, hvítt skegg með beingulum rákum hékk niður yfir bringuna allt að mitti. Hann deplaði hrukkóttum augnlokunum framan í mig og vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið. „Gaman að sjá þig, gaman að sjá þig!“ tísti hann alúðlega og tvísté. „Hann heyrir dálítið illa“ hvísl- aði Chester laumulega að mér. „Dragnaðist þú með hann rúmar sex þúsund mílur til þess eins að kaupa ódýran gufudall?“ spurði ég. „Ég hefði tekið hann með mér tvívegis í kringum hnöttinn um leið og ég leit hann augum“ sagði Chester af hjart- ans sannfæringu. „Við munum sjá um að útvega skipið, drengur minn. Er það mín sök að hver einasti skipstjóri og útgerðarmaður í Ástralíu og Asíu reynist vera hreinn fáráðlingur? Einu sinni ræddi ég í þrjár stundir við mann í Auckland. „Sendu skip á staðinn“ sagði ég, „sendu skip á staðinn. Ég skal gefa þér helminginn af fyrsta farminum, þú mátt eiga hann, færð hann fyrir ekkert - aðeins til að tryggja góða byrjun.“ En hverju held- urðu að hann svari: „Ég gerði það ekki þótt þetta væri eini staðurinn á jarðríki sem hægt væri að láta skip sigla til.“ Éullkominn hálfbjáni, náttúrulega. Sker, hafstraumar, ekkert akkerislægi, aðeins berir hamraveggir að leggjast að, ekkert tryggingafélag tæki áhætt- una, kvaðst ekki sjá að hægt væri að hlaða skipið á skemmri tíma en þrem árum. Fífl! Ég kraup næstum á kné fyrir framan hann. „En lítt’á málin eins og þau blasa við“ segi ég. „Hvað um einhver sker og hvirfilbylji. Lítt’á þetta eins og það blasir við. Þarna er gúanó sem eigendur sykurplantek- ranna í Queensland berðust um - tækju að berjast um strax uppi á bryggjunum, skal ég segja þér...“ En hvað fæst að gert þegar við eintóm fífl er að eiga?... „Þú ert bara að gera að gamni þínu, Chester" segir hann... Gera að gamni mínu! Ég hefði getað tárfellt. Spurðu hann Robinson skip- stjóra hérna... Svo var annar útgerðar- maður - feitur náungi í hvítu vesti í Wellington, sem hélt að ég ætlaði að plata sig á einn eða annan hátt. „Ég veit ekki að hverslags asna þú leitar“ segir hann, „en ég á í önnum núna - vertu sæll“ segir hann. „Helst hefði ég viljað grípa hann báðum höndum og fleygja honum út um gluggann á hans eigin skrifstofu. En það gerði ég ekki. Ég var jafnaðar- ^ÖMánnadagsblaðið 97
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.