Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Page 101

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Page 101
Vendersgade 23 Köbenhavan K 25. okt. 1923 Elsku mamma Nú eru bráðum komnar þrjár vikur síðan jeg kom til Hafnar. Við vorum fimm ísfirðingar saman og alla leið- lr>a í sama klefa á skipinu og sama húsi, síðan við komum hingað. Það eru þeir Leópoldssynir Þórhallur og Jón, Aðalsteinn sonur Jóns Þórhallssonar, þessir ætla allir a Kaupmannahafnarskólann og Daníel sonur Jóhannesar pósts sem ætlar á Iðnaðarmannaskólann, og svo jeg. Fyrst gistum við á hinu „Nýja Missionshóteli“ af því að við vorum ókunnugir. Þar gistum við í þrjá daga meðan við vorum úti um allt að fá leigð herbergi handa okkur. Af þeim var hægt að fá nóg með fallegum húsgögnum, en þau voru bara dýr. Seinast völdum við herbergi hjá gamalli piparkerlingu sem kallaði sig fröken. Herbergin eru mjög þægileg, en við kunnum ekki við mataræðið, fáum oftast eitthvert kál, kartöflur og svínaflesk. Þetta er náttúrulega ekkcrt vondur matur fyrir þá sem eru vanari við hann en við af honum. Þeir eru allir búnir að fá sér leigt annars staðar og flytja um mánaðamótin. Kerlingin er oft skemmtileg í viðmóti og segir okkur hitt °g þetta, og við segjum henni í staðinn ýmsar trölla- sögur frá Islandi. Þegar við vorum að spyrja hana hvort fún hefði nokkurn tíma haft íslending, sagðist hún hafa haft einn fyrir mörgum árum, en aftur á móti marga Færeyinga, Grænlendinga og Finna, en við skutum inní á íslensku að hún hefði sem sagt haft allra sveita kvikindi. Fótti okkur leitt að vera taldir upp með verstu óeirða- Seggjunum. Fæðið og herbergin kosta einar hundrað krónur fyrir hvern okkar um mánuðinn, sem er svona 130 kr. ísl. Við erum búnir að labba um borgina þvera og endilanga, aftur og aftur og skoða hinar merkustu byggingar og súfn, hæstu turna og lystigarða. Ber margt og mikið fyrir augu, sem gaman er fyrir útlendinga að sjá og athuga. fkernmtanir eru margar og margvíslegar fyrir þá sem núga peninga hafa. En í sjálfu sér er lífið bara leiðinlegt, H. 6 á morgnana vaknar maður við skröltið í vagnhest- Unum. öskrin í bílunum, slætti í sporvögnunum, Hukknahljóð og járnbrautavæl, og allan þann gauragang Serr> hundruð þúsunda manna gera í þéttskipaðri borg. Fftir labbið á steingötunum verður maður jafn þreyttur °8 í hörðustu kolavinnu. Umferðin er stundum svo rnikil að lögregluþjónarnir verða að láta umferðina í e>nni götu hætta, til að hægt sé að komast áfram í annarri. ^íðan jeg kom til Hafnar hefur lífið gengið nokkuð ævintýralega hjá mjer, jeg hef semsagt daglega verið að flækjast á milli mestu manna borgarinnar og Dana. Þú getur varla trúað hvað jeg hef verið ósmeykur að tala við þá. Þú veist ekkert um það að þegar jeg ásetti mjer að fara til Danmerkur, hafði jeg alltaf í huganum að komast inn í sjóherinn eða á skólann. Svo þegar jeg kom til Hafnar var það rnitt fyrsta verk eftir að jeg var korninn í ró að heimsækja sendiherra Islands herra Svein Björnsson og spyrja hann hvort Islendingar fengju að læra herstjórn og sjómannafræði í Danska sjóhernum. Hann tók vel á móti mjer og spurði hvort jeg hefði hug á þessu og vísaði mjer til Hartungs flotaforingja, Chefans fyrir Kadettaskólanum. Það er sá sem var kommandör á herskipinu „Fylla“ og tók flesta togarana 1921. Til hans fór ég undir eins daginn eftir, hitti jeg hann í skólanum og þurfti að fara í gegnum marga officera til að komast inn til hans, þar sem hann sat í fullum ein- kennisbúningi með sverð við hlið. Jeg kynnti honum mig þarna sjálfur og rjetti honum nafnspjaldið mitt, bukkaði mig og beygði, eins og jeg hafði lesið um að gert væri í skáldsögum og sjeð á kvikmynd og bar upp erindið hvort hann vildi ekki gera svo vel að gefa mjer upplýsingar um hvort að íslendingur fengi og hvað hann þyrfti til að verða sjóliðsforingi. Hef jeg aldrei á ævinni hitt alúðlegri eða kurteisari mann. Hann bauð mjer til sætis í mjúkum hægindastól og spurði hvort jeg væri stúdent, jeg sagði honum að jeg væri ekki það og yfir höfuð lítt lærður og hefði mest það sem af væri stundað sjó. Þá sagði hann mjer að aðsókn að skólanum væri svo mikil að það hefðu verið gefin út lög um að enginn fengi upptöku í skólann nema hann hefði stúdentspróf eða hefði lesið undir inntökupróf í „Polyteknisk Læreanstalt" Fjöllistaskólanum og hefði fengið fyrstu einkunn í reikningi, ensku, þýsku og frönsku. Enn fremur sagði hann að ef þetta væri fastur ásetningur minn þá gæti jeg tekið „kursus lærdom“ í þessum fögum hjer í Kaupmannahöfn á sérstökum skóla sem til þess sé ætlaður að lesið yrði undir upptökupróf, en um leið sagði hann að það kostaði 450 kr. og að jeg yrði að uppi- halda mig sjálfur einhvers staðar úti í borg. Sagði hann að undirbúningurinn tæki tvö ár með því að lesa allt árið um kring og með því að jeg yrði duglegur. Eftir það gæti jeg fengið inntöku á liðsforingjaskólann og þar verði jeg að lesa í fjögur ár, en vera til sjós á sumrin á her- skipunum hingað og þangað úti um heim. A þeim skóla kostar það aftur á móti ekkert sagði hann, þar fái jeg frí föt að mestu leyti og fæði og húsnæði og 800 kr. f kaup seinustu árin. Þá eftir 6 ár þegar jeg væri orðinn 25 ára S,(fMANNADAGSBLAÐID 101
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.