Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Page 104

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1995, Page 104
að aldri, get jeg orðið sjóliðsforingi af seckond gráðu. Þar með gaf hann ýmsar upplýsingar og skýrslu um upptöku í skólann og skrifaði upp fyrir nrig ýmsar leiðbeiningar og ráðlagði mjer að fara og tala við her- málaráðuneytið danska. Síðan kvaddi hann nrig nreð handabandi og sagði að það gleddi sig ef jeg gæti komið í skólann. En þetta gladdi mig ekkert þegar jeg hugsaði til þess að jeg yrði að læra í tvö ár undir skólann og kosta mig hjer í Kaupmannhöfn, því jeg vissi að á því hefði jeg engin efni. Svo í þeirri von að berjast til þess síðasta fór jeg til sendi- herrans og sagði honum mínar farir ekki sljettar, það þyrfti meiri lærdóm til að komast inn í skólann en jeg hefði sjálfur haldið og sagði frá því sem hefði farið fram milli mín og flotaforingjans og spurði um leið hvort jeg gæti fengið lánaðar 3000 kr. hjá ríkinu gegn sæmilegum rentum og léttum borgunarskilmálum eftir 6 ár. Sagði hann að slíkt gæti jeg ekki fengið í hasti. Fyrst hefði ríkið litlum peningum úr að dreifa og svo yrði slík krafa að fara í gegnum þingið og myndi jeg ekki geta fengið það fyrr en seint í vetur og þá væri veturinn orðinn eyði- lagður fyrir mig. Svo sagði hann að 3000 kr. myndi verða langtum of lítið fyrir mig og tók til dæmis háskóla- stúdentana sem fengju 100 kr. styrk á hverjum mánuði og sagði að sjer þætti það ekki voða mikið þótt jeg færi með 6000 kr. í þessi tvö ár. Enda er gengismunurinn voða mikill, hjer er íslensk króna á 70-80 aura og þó er allt jafn dýrt og ef ekki dýrara en á íslandi. Sendiherrann gaf mjer tvö ráð, annað að bíða þangað til í lok nóvember að forsætisráðherrann kæmi út og tala um þetta við hann, en um leið sagði hann að þetta ráð væri verra, fyrst vegna þess að forsætisráðherrann gæti ekki og kannske vildi ekki ráða þessu einn og þá væri jeg búinn að bíða til einskis og búinn að eyða þeim aurum sem jeg hefði og gæti þá ekki komist upp. Hitt ráðið sagði hann að væri betra, að jeg flýtti mjer upp til íslands og talaði sjálfur við stjórnarráðið, og sagði hann að það hefði bestu áhrifin ef þeir sæu mig sjálfir, heldur en ef þeir fengju hvítan pappír með einhverjum stöfum á og að það gæti vel verið að þeir vildu kosta mig til náms, því ríkið þyrfti bráðum á svona mönnum að halda. Svo nú eftir að vera búinn að eyða öllum mínum peningum í þetta verð jeg að sigla upp til Islands til að fara að kljást við þá í Reykjavík, en hvað á að gera ef nraður hefur sett sjer eitthvert takmark, þá verður maður að reyna hvað sem er til að keppa að því, þá hefur maður ekki sjálfum sjer um að kenna. Til að vera ekki alveg peningalaus þegar jeg kem upp ætla jeg að fá á að vinna mig upp á á einhverju skipinu og helst að fá pláss á ein- hverju af skipum þeim sem ganga upp til íslands. Mjer þætti vænt um ef þú gætir fengið Halldór til að ráða ekki fastan mann í staðinn fyrir mig þangað til jeg kem, því jeg þarf að vera uppi þangað til í maí í vor ef að þingið verður gott við mig og jeg geti farið að læra þá. Skilaðu kærri kveðju til Björns og systkina minna. Þinn einlægur sonur Henry A. Hálfdánarson Es.: Mundu eftir happdrættismiðunum sem á að draga um í nóv. Þeir eru í kommóðunni. H. Skoðun og viðgerðir gúmmíbáta allt árið Önnumst einnig viðgerðir á flot- og BJÖRGUNARBÚNINGUM. GÚMMÍBÁTAÞJÓNUSTAN Eyjarslóð 9 • Örfirisey Sími: 551 4010 104 SJÓMANNADAGSBLAgi£
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.