Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Blaðsíða 59

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1997, Blaðsíða 59
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 59 Danmerkur. Hafði verið framið á hon- um níðingsverk í ellinni, svikum beitt og heitrofum, og þó hann væri við- sjáll maður, þá er öll sú saga svo hörmuleg að hverjum góðum dreng má renna til rifja. Munu fá gamal- menni orðið að tæma jafn beiskan raunabikar sem þessi skapmikli höfð- ingi. Dr. Jón Þorkelsson hefur kveðið snilldarlega um Ögmund og minning hans mun æ verða uppi á Islandi. Hér ber líka að geta hans með heiðri og ís- lenskir farmenn eiga ekki að gleyma þessum ráðríka og stórbrotna skip- stjóra frá fyrri tíð. Hann er gott dæmi þess hve mikið táp gat þá verið í ís- lendingum. Ögmundur gerðist snemma sjó- maður og var oft í förum til Noregs. í tíð Stefáns biskups var hann skipherra á skútu Skálholtsstaðar og sigldi henni nokkrum sinnum til Noregs, einnig eftir að hann var orðinn prest- ur. Sjóferðir sínar mun hann hafa far- ið að sumrinu og haldið þeim áfram allt til ársins 1508. Biskup varð Ög- mundur1521. Það er auðvitað að í siglingum sín- um hefur Ögmundur hreppt misjöfn veður og stundum hrakninga, og er sérstaklega getið um hrakning hans til Grænlands í tveimur utanförum hans, en ekki kemur mönnum saman um hvenær annar hrakningurinn hafi orð- ið. Þegar Ögmundur sigldi heim 1522 til þess að taka við biskupsstólnum var hann á litlu skipi, áhöfnin aðeins 11 menn, að honum meðtöldum og enginn stýrimaður innanborðs nema Þjóðverji nokkur, sem aðeins hafði einu sinni komið til Islands. Er því ekki ólíklegt að Ögmundur hafi í ferð þessari þurft á sinni gömlu sjó- mennskukunnáttu að halda. I þessari ferð er það víst að þá Ögmund hrakti til Grænlands og Páll E. Ólafsson tel- ur að hann hafi einng hrakist þangað 1519.“ Skammlíf tilraun til sjálfstæð- ari verslunarhátta „Skip þau er Skálholtsstóll átti báru jafnan nafnið Þorlákssúðin og var þess getið hér að framan er skip staðarins „forgekk" árið 1381. En oft- ar hreppti einhver Þorlákssúðanna áföll. Ein Þorlákssúðin, gamalt skip. Friðrik konungur V. Við hann voru „ Friðriksóskin “ og „ Friðriksvonin “ kenndar og þótt útgerðin lánað- ist illa má samt sem áður virða þetta framtak við há- tignina. var við lýði fram á daga Marteins biskups Ein- arssonar. Þá brotnaði hún við Eyrarbakka og þar með var lokið sigl- ingum á henni og ekki átti Skálholtsstaður haf- skip eftir það. Noregs- ferð fór þetta skip þó enn 1528. Skútan lá á Eyrarbakka þegar hún ekki var í siglingum, stóð í nausti skammt fyrir utan Skúmsstaði. Skipherrar voru alla tíð íslenskir, „allir nafn- kenndir menn, svo sem síra Þorleifur Eiríksson á Breiðabólsstað í Fljótshlíð og Sæ- mundur bróðir hans í Ási í Holtum, en á síð- ari árum Ögmundar biskups er getið þeirra Eyjólfs, sonar Kolgríms eða Kollgríms ábóta Konráðssonar í Þykkvabæ, og Magnús- ar Péturssonar Eiríks- sonar... Guðbrandur biskup Þorláksson á Hólum fékk leyfi konungs til að hafa skip og nota það til að birgja bisk- upsstólinn að vörum. Það var 15. mars 1580 að leyfið var veitt biskupi og nokkrum öðrum og fengu þeir verslunina í Skagafirði. Þeir keyptu sér skip hjá Hamborgarmönnum, 60 lestir, en rétt á eftir týndist skipið í hafi. Hefur það líklega verið 1581. Þar með var þessari tilraun til sjálf- stæðari verslunar lokið.“ Raunasaga Duggu-Eyvindar „Ur þessu er varla um það að ræða að Islendingar eigi hafskip fyrr en löngu síðar, á 18. öld (duggur Skúla fógeta). Heimildir eru þó um að fó- getar tveir á Bessastöðum hafi látið gera tvö haffær skip og mun annað hafa siglt til Björgvinjar, en sam- kvæmt annálum voru skip þessi smíð- uð 1633 og 1651. Siglingar þeirra voru þó vitaskuld í þágu fógetanna en ekki Islendinga. Þá verður að geta hér um Duggu- Eyvind, þótt saga hans sé flestum kunn. Eyvindur var uppi frá því um 1678- 1746. Hann réðst í það að smíða haffæra duggu og er sagt að hollenskir duggarar hafi séð smíðina og líkað vel og gefið Eyvindi allan reiða á hana, segl og akkeri. En skömrnu eftir að smíðinni var lokið strandaði duggan og brotnaði í spón. Það mun hafa verið 1717. Vallaannáll segir: „Þá brotnaði og dugga sú við klappirnar þar útfrá ós- inum (þ.e. Hofsósi) er Eyvindur Jóns- son hafði smíðað nokkrum árum áður og farið með til Grímseyjar og vestur til Skagafjarðar. (Eyvindur átti fyrst heima að Sauðakoti á Upsaströnd). Var hann á duggunni það sinn og komst með nauðum til lands...“ Aðrar heimildir segja hins vegar að hann hafi aðeins átt dugguna í eitt ár. Framtak Duggu-Eyvindar hefur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.